Rannsóknir á rjúpu halda áfram hjá Náttúrustofunni

Náttúrustofa Norđausturlands hóf rannsókn á varpárangri og sumar-afföllum rjúpna í Ţingeyjarsýslum voriđ 2009 og verđur henni fram haldiđ í sumar. Hún fer

Rannsóknir á rjúpu halda áfram hjá Náttúrustofunni
Almennt - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 541 - Athugasemdir ()

Rjúpan rannsökuđ. Ljósm. nna.is
Rjúpan rannsökuđ. Ljósm. nna.is

Náttúrustofa Norðausturlands hóf rannsókn á varpárangri og sumar-afföllum rjúpna í Þingeyjarsýslum vorið 2009 og verður henni fram haldið í sumar. Hún fer þannig fram að um vorið eru kvenfuglar veiddir og á þá sett senditæki.

Athugað er svo með rjúpurnar einu sinni í viku allt sumarið og ef um vanhöld er að ræða þá er reynt að greina orsökina.

Á heimasíðu NNA segir að síðastliðið vor hafi verið settir sendar á 51 rjúpu og þeim fylgt eftir yfir sumarið. Í vor er stefnt að því að setja senditæki á um 40 fugla og fylgja þeim eftir í sumar. 

 

Aðalrannsóknasvæðið er á Tjörnesi en þar er þéttleiki rjúpna mikill. Rjúpurnar eru veiddar í net sem tveir einstaklingar strekkja á milli sín. Þriðji aðilinn leiðbeinir þeim um nákvæma staðsetningu fuglsins svo að netið missi ekki marks en það er lagt yfir rjúpuna. Talsverða lagni og þolinmæði þarf til svo allt gangi upp en fyrst á vorin eru rjúpurnar fremur styggar og varar um sig. Þegar líður á vorið og nær dregur varpi spekjast fuglarnir, sérstaklega ef heitt er í veðri , og gengur veiðin þá betur. Áður en varp hefst er veiði hætt.

Hver rjúpa sem veiðist er aldursgreind, vigtuð og vængur og haus eru mæld. Þá fær rjúpan fótmerki og að lokum senditæki áður en henni er sleppt.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ