Pistill: Harpa sgeirs gerir upp sumarirttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 635 - Athugasemdir ( )
Tímabilið hjá kvennaliði Völsungs er á enda. Stelpurnar enduðu mótið vel og lokaniðurstaða þriðja sæti B-riðils
í 1.deild. Harpa Ásgeirsdóttir, fyrirliði liðsins, skrifaði smá uppgjörspistil fyrir leikskránna sem kom út í gær og hér
mál lesa skrif hennar.
Þá er þessu tímabili lokið hjá okkur stelpunum og þegar uppi er staðið held ég að við getum verið sáttar. Það er
margt gott sem að við tökum með okkur inn í næsta tímabil eins og hversu mikill stígandi var í liðinu og við sýndum flottan karakter
með því að komast aftur á beinu brautina eftir frekar slakt mót framan af. Við náðum að vinna síðustu fjóra leikina og
enduðum þar með í 3.sæti í riðlinum. Eftir á að hyggja er það eiginlega bara svekkjandi fyrir okkur að hafa ekki komist í
úrslitin því í raun vorum við alveg með mannskapinn í það. Það sem stendur upp úr eftir sumarið er örugglega ferðin
okkar til Keflavíkur, hún var löng og erfið og við lendum 1-0 undir en vinnum leikinn svo 3-1 með virkilega sætum lokakafla. Fáum dýrindis pizzu
áður en við leggjum í hann og erum svo mættar á víkina aftur upp úr 5 um hánótt og þurftu sumar að fara að vinna kl 6
eða 7 sem gerði þetta allt að ennþá sætari sigri. Það má líka nefna Tindastóls leikinn hérna heima þar sem við
vorum búnar að vera á þeirra vallarhelmingi allann leikinn en ætluðum ekki að ná að koma boltanum inn og tryggja okkur sigur, svo á
lokamínútu leiksins náðum við loksins að tryggja okkur öll stigin og var það mjög ljúft að líta upp í brekku og
sjá stuðninginn sem við höfðum. Síðast en ekki síst verður bara að nefna ferðalagið okkar til Ísafjarðar, það var
mjög skemmtilegt í alla staði. Við fengum ,,sightseeing” hjá frábærum flugmönnum Mýflugs. Við áttum harma að hefna þar
sem við steinlágum hérna heima fyrir BÍ/Bolungarvík en það var ekki á könnunni að tapa aftur fyrir þeim og fórum við heim
með fallegan 4-0 sigur, sem betur fer var Ragna búin að athuga hvort það væri ekki örugglega pláss fyrir öll þrjú stigin í
flugvélinni. Þegar á heildina er litið er þetta búið að vera mjög skemmtilegt og lærdómsríkt sumar þar sem við tefldum
fram mjög ungu og efnilegu liði. Eingöngu skipað stelpum sem eiga einhverjar rætur að rekja til Húsavíkur. Við viljum að lokum þakka fyrir
stuðninginn og alla þá aðstoð sem við höfum fengið frá hinum ýmsu aðlium þá sérstaklega okkar elskulega
stússráði.
Athugasemdir