Pétur Ásbjörn kominn til VölsungsÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 827 - Athugasemdir ( )
Pétur Ásbjörn Sæmundsson er genginn til liðs við Völsung og mætti á sínu fyrstu æfingu með liðinu í dag.
Pétur kemur á láni frá Álftanesi en hann hefur einnig spilað fyrir Hamar, Markaregn og Hauka þar sem hann á að baki leiki í Pepsi-deild
karla og 1.deild. Pétur sem er fæddur 1989 er miðjumaður en getur sömuleiðis spilað vörn og enginn vafi á því að hann mun styrkja
hópinn í toppbaráttunni síðari hluta sumars.
Völsungur mætir Gróttu á nesinu á morgun er 14 umferð 2.deildar fer fram og að öllum líkindum spilar hann sinn fyrsta leik fyrir félagið
annað kvöld.
Til gamans má geta þess að eflaust hafa margir Húsvíkingar farið yfir framtíðina og rætt lífsins gátur við móðir hans
en Pétur er sonur Siggu Klingenberg spákonu og verður hér með kallaður Klingenberginn.
Við bjóðum Klingenberginn hjartanlega velkominn í fjölskylduna!
Hér má sjá myndir frá æfingu liðsins í dag.
Klingenberginn var hress á sinni fyrstu æfingu
Dragan þjálfari var einnig mjög hress eins
og sjá má
Nikola Kristinn Stojanovic sonur Dragans þjálfara fylgdist vel með
Athugasemdir