Pálmi Rafn til liđs viđ Lilleström

Fótbolti.net greinir frá ţví í dag ađ Lilleström hafi fengiđ miđjumanninn Pálma Rafn Pálmason til liđs viđ sig frá Stabćk.

Pálmi Rafn til liđs viđ Lilleström
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 425 - Athugasemdir ()

Pálmi Rafn međ hressum Völsungum á ćfingu.
Pálmi Rafn međ hressum Völsungum á ćfingu.

Fótbolti.net greinir frá því í dag að Lilleström hafi fengið miðjumanninn Pálma Rafn Pálmason til liðs við sig frá Stabæk.

Pálmi Rafn hefur samþykkt þriggja ára samning við Lilleström en hann tekur gildi þegar núverandi samningur hans hjá Stabæk rennur út um áramót.

Pálmi er uppalinn hjá Völsungi en hann lék síðan með KA og Val áður en hann fór til Stabæk árið 2008. Þessi 27 ára gamli leikmaður skoraði átta mörk í 26 leikjum með Stabæk á nýliðnu tímabili.

,,Við erum ánægðir með að hann komi til okkar. Okkur hlakkar til að sjá hann í búningi LSK," sagði Torgeir Bjarman yfirmaður íþróttamála hjá Lilleström.

Hjá Lilleström hittir hann fyrir fleiri íslenska leikmenn en á nýliðnu tímabili spiluðu Björn Bergmann Sigurðarson, Stefán Gíslason og Stefán Logi Magnússon með liðinu. (fotbolti.net)


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ