Nóg um ađ vera í íţróttunum um nýliđna helgi

Ţađ var margt um ađ vera íţróttalífinu um helgina og ţar má m.a nefna Orkugönguna, Húsavíkurmótiđ í handbolta og ţá léku karla- og kvennaliđ Völsungs í

Nóg um ađ vera í íţróttunum um nýliđna helgi
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 423 - Athugasemdir ()

Það var margt um að vera íþróttalífinu um helgina og þar má m.a nefna Orkugönguna, Húsavíkurmótið í handbolta og þá léku karla- og kvennalið Völsungs í Lengjubikarnum í knattspyrnu.

 

Vegna aðstæðna var leiðin í Orkugöngunni stytt og gengnir voru 48,3 km.

41 þátttakendur voru skráðir til leiks en einn forfallaðist vegna veikinda. Því tóku 40 manns þátt í Orkugöngunni, 35 í karlaflokki og 5 í kvennaflokki. Úrslitin má skoða hér

Húsavíkurmótið í handbolta fór fram í Íþróttahöllinni og að þessu sinni voru eingöngu stúlknalið skráð til keppni. Úrslit mótsins má lesa hér

Bæði Völsungsliðin í knattspyrnu unnu sína leiki í Lengjubikarnum og eru komin í undanúrslit. Strákarnir sigruðu Dalvík/Reyni 2-1 í Boganum með mörkum Aðalsteins J. Friðrikssonar og Bjarka Baldvinssonar. Hér má lesa umfjöllun um leikinn.

Stelpurnar sigruðu Draupni 3-0 í Boganum og skoraði Hafrún Olgeirsdóttir tvö mörk og Helga Björk Heiðarsdóttir eitt. Bæði lið eru taplaus í sínum riðlum, stelpurnar unnu alla sína leiki en strákarnir hafa unnið þrjá og gert eitt jafntefli. Þeir eiga einn leik eftir gegn Leikni F nk. laugardag.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ