Myndbnd: Nju leikmenn Vlsungs - Helga Gurn, Marko Blagojevic & Tine Zornikrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 721 - Athugasemdir ( )
Næst kynnum við til leiks nýju leikmenn félagsins. Stelpurnar fengu til liðs við sig Helgu Guðrúnu Guðmundsdóttir frá Breiðablik en
fyrir þá sem ekki vita er þessi stúlka kærasta Halldórs Geirs Heiðarssonar og spilar þar af leiðandi ásamt mágkonu sinni Helgu
Björk í grænu treyjunni í sumar.
Karlaliðið fékk til sín þrjá nýja leikmenn en þeir Marko Blagojevic og Dejan Pesic komu frá Serbíu sem og Slóvenski framherjinn
Tine Zornik sem vonandi stígur í markaskóna hverja helgi í sumar. Því miður var Dejan Pesic ekki kominn til landsins er gerð þessara myndbanda
stóð yfir en hér fyrir neðan má sjá myndbrot og viðtöl við nýju leikmennina okkar Helgu Guðrúnu, Tine og Marko. Við
bjóðum þau öll hjartanlega velkomin í Völsungsfjölskylduna. Gjörið svo vel!
Meistaraflokkur karla: Marko Blagojevic & Tine Zornik
Meistaraflokkur kvenna: Helga Guðrún Guðmundsdóttir
Athugasemdir