Milan: g er kominn hinga til ess a skora mrkrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 567 - Athugasemdir ( )
„Þetta er mjög mikilvægur leikur og við verðum að gefa 150%. Ég vona að allir leikmenn frá þeim fyrsta til hins síðasta
gefi allt sem þeir eiga og spili með hjartanu því það mun vonandi færa okkur öll þrjú stigin í leikslok," segir Milan Pesic,
framherji Völsungs, en strákarnir mæta KV á morgun kl.14 á Húsavíkurvelli í toppslag deildarinnar.
„Þetta er allt undir okkur komið og það eru fimm leikir eftir. Allir leikir eru eins og úrslitaleikir núna og við ætlum okkur að vinna
þá alla en við einbeitum okkur að einum leik í einu. Vonandi náum við okkar markmiðum og förum upp um deild en það skiptir líka miklu
máli að skora mörk því þetta gæti ráðist á markatölu í lok tímabilsins," bætti Milan en hann hefur verið
hér á landi í nokkrar vikur. Hvernig líst honum á Húsavík ?
„Mér líður vel hér og fólkið er mjög vinalegt. Þetta er rólegur bær og ekki margir sem að búa hér en
þetta er mjög huggulegt bæjarfélag og liðið hefur góða velli, bæði aðalvöllinn og svo núna nýja gervigrasið.
Strákarnir í liðinu eru margir mjög góðir og ungir hæfileikaríkir leikmenn innan liðsins."
„Ég hef náð að skora en ég er samt alls ekki ánægður með spilamennskuna hjá mér hingað til og veit að ég get
spilað miklu betur. Ég vona að ég nái að sýna í þessum fimm leikjum sem að eftir eru að ég er kominn hingað til þess
að skora mörk," sagði Milan einbettur að lokum.
Tengdar greinar:
Klingenberginn: Megið búast við Siggu Kling á vellinum áður en að tímabilinu lýkur
Athugasemdir