Marko og Tine: Mjög ánćgđir međ fyrstu mörkin

„Ţađ var virkilega ánćgjulegt ađ sjá boltann í netinu og gott ađ vera kominn međ fyrsta markiđ. Ég fékk góđa sendingu inn fyrir frá Arnţóri og ţađ var

Marko og Tine: Mjög ánćgđir međ fyrstu mörkin
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 558 - Athugasemdir ()

Marko smellir einum á kollinn á Tine
Marko smellir einum á kollinn á Tine

„Það var virkilega ánægjulegt að sjá boltann í netinu og gott að vera kominn með fyrsta markið. Ég fékk góða sendingu inn fyrir frá Arnþóri og það var ekki erfitt að klára þetta færi," sagði Tine Zornik eftir sigurinn gegn Hamar í gær en hann er búinn að brjóta ísinn og hans fyrsta mark fyrir Völsung orðið að veruleika.

tine1
                                               Tine fær sendigu frá Arnþóri......

tine2
                                                       skýtur á markið........

tine3
                                                                     og...........

tine4
                           fyrsta mark hans fyrir félagið orðið að veruleika

„Þetta var erfiður leikur og sérstaklega eftir að þeir skora strax í upphafi síðari hálfleiks en sem betur fer skoraði Marko aftur og við kláruðum leikinn," sagði Tine ánægður með stigin.

„Við beyttum skyndisóknum og Arnþór var með góðar hornspyrnur sem skiluðu okkur tveimur mörkum. Allt liðið spilaði vel í dag og í raun góður dagur hjá öllum," bætti Tine við. Næsti leikur liðsins fer fram um næstu helgi á Húsavíkurvelli en þá fá strákarnir Gróttu í heimsókn.

tine5

„Vissulega erum við með sex stig og fullt hús stiga en það þýðir í raun ekkert. Við verðum að halda áfram að vinna og einbeita okkur að næsta verkefni. Ég vona að ég haldi áfram að reima á mig markaskóna," sagði Tine brosandi að lokum.

Marko Blagojevic, maður leiksins, var að vonum ánægður með sín fyrstu mörk fyrir félagið og að hafa tryggt liðinu mikilvægan sigur í Hveragerði í gær.

„Mörkin skipta mig miklu máli og ekki síður mikilvæg fyrir liðið. Ég er mjög ánægður og þessi mörk munu hjálpa mér inn í næstu leiki," sagði markaskorarinn Marko yfirvegaður og sáttur í leikslok.

marko1
                                     Marko skallar að marki Hamars.......

marko2
                                 og skorar sitt annað mark fyrir Völsung

„Þetta var góður leikur hjá okkur. Við sýndum að við erum betra lið og hirtum öll stigin sanngjarnt," sagði Marko sem átti frábæran leik í gær.

marko3
marko4

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Heilladísirnar svifu loks um Grýluvöll

Bergur Jónmunds: Beint í millifóta konfektið á honum


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ