Marko Blagojevic: Hér á Húsavík líđur mér eins og heimaÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 621 - Athugasemdir ( )
,,Ég er mjög ánægður og þessi þrjú stig eru mikilvæg fyrir okkur í toppbarráttunni. Það er mikið af
fólki í bænum og sigurinn skiptir marga hér í bænum miklu máli svo það eru allir sáttir. Þetta er mikilvæg helgi fyrir
bæjarfélagið og aldrei neitt annað í boði enn að sigra þennan leik fyrir félagið, okkur og fólkið," sagði Marko Blagojevic,
maður leiksins, eftir sigurinn á Mærudögum en Völsungur hafði betur, 2-1, er Hamar frá Hveragerði kom í heimsókn um helgina.
,,Þetta var fínn leikur hjá okkur og sérstaklega varnarlega. Við fengum líka fína hálf-sénsa til að bæta við mörkum
en við kláruðum þetta og tókum öll stigin og það er það sem skiptir máli," sagði Marko sem að hefur verið
frábær í sumar en hvernig hefur tími hans verið á Húsavík og hvernig líkar honum við lífið á víkinni?
,,Hér á Húsavík líður mér eins og heima. Fólkið hér er mjög vinalegt og engin vandamál hafa komið upp. Eins og
ég sagði mér líður eins og heima hér á Húsavík," sagði Marko en hann hefur verið einn besti leikmaður liðsins á
tímabilinu. Gæti hann hugsað sér að spila annað tímabil með Völsungi?
,,Ég er mjög þakklátur fyrir það að fólki hér á Húsavík finnst ég vera góður leikmaður.
Auðvitað vil ég vera áfram hjá Völsungi, fólkið hér er frábært og vonandi verð ég hér áfram á
næsta ári," sagði kóngurinn í leikslok.
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Mærusigur í steikjandi hita á Húsavíkurvelli
Milan Pesic: Mjög mikilvægt að ná að skora strax
Bergmann bræður í viðtali eftir mærusigurinn
Athugasemdir