Markadrottning rsins: Ruth Ragnarsdttirrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 953 - Athugasemdir ( )
Það var ansi mjótt á munum þetta árið hver myndi hirða markadrottningartitilinn en þær Ruth Ragnarsdóttir og Helga Björk
Heiðarsdóttir skoruðu báðar sjö mörk fyrir liðið í sumar. Það munaði aðeins örfáum mínútum á
þeim stöllum og þar sem Ruth spilaði færri mínútur en Helga er titilinn hennar í ár.
Ruth Ragnarsdóttir, vinstri kantmaður Völsungs, er markadrottning sumarsins árið 2012. Hún skoraði sjö mörk í 15 leikjum og voru þau
í öllum regnbogans litum. Sérstaklega er minnistætt mark gegn Grindavík á útivelli snemma sumars er hún smellti boltanum í
fjærhornið af löngu færi.
Ruth er 18 ára gömul og kom við sögu í öllum leikjum Völsungs í sumar. Leikni hennar og hraði olli varnarmönnum andstæðinganna oftar en
ekki vandræðum og er krafturinn í vinstri fót hennar meiri en hún gerir sér oft grein fyrir. Algjör leigumorðingi fyrir framan markið sem varla
missir marks ef hún kemst í færi. Hún setti punktinn yfir i-ið í frábærum útisigri á Keflavík eftir Verslunarmannahelgi og
í næsta leik gegn BÍ/Bolungarvík braut hún ísinn og skoraði fyrstu tvö mörkin í einum besta leik sumarsins hjá liðinu.
Ruth á að baki 32 leiki fyrir meistaraflokk Völsungs og hefur skorað í þeim átta mörk. Hún spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki
sumarið 2010, þá aðeins 16 ára gömul. Ruth getur með auknum metnaði og betri æfingu orðið enn stöðugari leikmaður og
burðarás í ungu liði Völsunga á komandi árum.
Ruth Ragnarsdóttir er Markadrottning Völsungs árið 2012
Tengdar greinar:
Markakóngur ársins: Hrannar Björn
Steingrímsson
Hermaður ársins: Sigvaldi Þór Einarsson
Hermaður ársins: Anna
Halldóra Ágústsdóttir
Athugasemdir