Lokahóf Völsungs fór fram í gćr - Dejan Pesic & Harpa valin bestÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 1714 - Athugasemdir ( )
Lokahóf meistaraflokka Völsungs fór fram í gærkvöld en fögnuðurinn var mikill og stemningin frábær. Leikmenn völdu besta og
efnilegasta leikmann sumarsins en Dejan Pesic og Harpa Ásgeirsdóttir voru valin best og Ásgeir Sigurgeirsson og Jana Björg Róbertsdóttir efnilegust sumarið
2012.
Heimabakarí gaf verðlaun fyrir besta, efnilegasta og mikilvægasta leikmanninn en þeir bræður Hrannar Björn Steingrímsson og Sveinbjörn Már
Steingrímsson afhendu verðlaunin fyrir hönd besta bakarí heimsins. Marko Blagojevic var kosinn besti leikmaður sumarsins, Ásgeir Sigurgeirsson efnilegasti og Dejan
Pesic mikilvægasti leikmaðurinn.
Undanfarin ár hefur 640.is/Nivea stúlka ársins verið valin og einnig hlaut Harpa Ásgeirsdóttir þau verðlaun svo hún fór heim af
lokahófinu með fullt fang af verðlaunagripum.
Þjálfarar liðanna Jóhann Rúnar Pálsson og Dragan Stojanovic völdu sömuleiðis leikmenn ársins og urðu fyrirliðarnir báðir
Harpa Ásgeirsdóttir og Hrannar Björn Steingrímsson fyrir valinu en Hrannar var heiðraður fyrir frábært tímabil þar sem hann var svo
sannarlega vel að því komin og hefur sýnt það og sannað að hann er alvöru leiðtogi og fyrirmynd.
Græni Herinn óskar öllum leikmönnum innilega til hamingju!
Athugasemdir