Kvennamt Lancome Katlavellirttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 308 - Athugasemdir ( )
Í dag fór fram Kvennamót Lancome á Katlavelli og gekk mótið vel fyrir sig. Veðrið eins og best verður á kosið, léttskýjað og 20-26 stiga hiti. Verðlaunin voru heldur ekki af lakari taginu, gjafabox frá Lancome.
Keppt var í punktakeppni í mótinu og Terma ehf, í samtarfi við Lyfju á Húsavík, veitti verðlaunin í mótið.
Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
1. sæti – Jóhanna Guðjónsdóttir 38 punktar
2. sæti – Þuríður Ingólfsdóttir 34 punktar
3. sæti – Kristín Magnúsdóttir 33 punktar
4. sæti – Jakobína Reynisdóttir 31 punktar
5. sæti – Björg Jónsdóttir 29 punktar
6. sæti – Sólveig Jóna Skúladóttir 28 punktar
Nándarverðlaun á 3.braut hlaut Oddfríður D. Reynisdóttir en hún var 1,31 mtr frá holu.
Nándarverðlaun á 5.braut hlaut Björg Jónsdóttir en hún var 2,01 mtr frá holu.
Einnig var dregið úr skorkortum, og voru skorkortin hjá þeim stöllum, Birnu Dögg Magnúsdóttir og Önnu K. Vilhjálmsdóttir dregin upp úr “pottinum” en umsjón með því höfðu þeir heiðursmenn, Ásmundur Bjarnason og Kristinn Lúðvíksson.
Athugasemdir