Klingenberginn: Megi bast vi Siggu Kling vellinum ur en a tmabilinu lkur

g er mjg spenntur fyrir essu og etta er auvita strleikur svo a er vonandi a flk mti vllinn og skri sem aldrei fyrr. Vi munum gefa allt

Ptur fagnar samt Milan
Ptur fagnar samt Milan

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu og þetta er auðvitað stórleikur svo það er vonandi að fólk mæti á völlinn og öskri sem aldrei fyrr. Við munum gefa allt sem við eigum í þetta, það er klárt. Við þurfum að svara fyrir síðasta leik," segir Pétur Ásbjörn Sæmundsson eða Klingenberginn eins og hann er kallaður.

„Þetta er algjörlega undir okkur komið og ef við strákarnir stöndum okkur þá erum við bara að fara upp, við ráðumst á alla leiki til þess að vinna þá og það verður ekkert öðruvísi á morgun," segir Klingenberginn en strákarnir eiga stórleik gegn KV á morgun kl.14 á Húsavíkurvelli og eru liðin jöfn stiga í 1 og 2 sæti fyrir leikinn.

kling2

„Það var frábært að sjá allt fólkið sem að mætti á Dalvík í síðasta leik og því miður vorum við ekki að sýna mikið, það bara gekk ekkert upp hjá okkur. Við stöndum í þakkarskuld við okkar fólk og gerum allt okkar til þess að borga það til baka á morgun," sagði Pétur en hann fluttist til Húsavíkur fyrir nokkrum vikum og býr í gamla húsinu hans Spjóta ásamt erlendu leikmönnum liðsins. Hvernig gengur heimilishaldið?

„Þeir eru allir mjög flottir, ég er ánægður með þá og þeir eru ekkert erfiðir. Mér finnst frábært að vera hér á Húsavík og mér líður vel hérna. Eins og ég hef sagt marg oft áður þá eru strákarnir í liðinu frábærir," segir Pétur en gæti hann hugsað sér að vera áfram í herbúðum Völsungs?

„Ég væri alveg til í að hugsa það og ef áhugi er fyrir því að hafa mig áfram þá er ekkert sem kemur í veg fyrir það að ræða framhaldið. Mér líst mjög vel á Dragan þjálfara hann er skipulagður og með flottar æfingar. Hann er svolítið öðruvísi en því sem ég hef kynnst áður, það er alltaf allt klárt hjá honum þannig að það eru stuttar en góðar æfingar hjá honum og ekkert kjaftæði. Hann mætir vel undirbúinn og maður er alltaf á fullu svo það er bara flott," sagði Pétur en hvað með kvenfólkið á Húsavík?

„Þær eru svakalegar en ég er reyndar ekki búinn að hitta margar af þeim. Maður er eitthvað búinn að skoða en ekki búinn að finna neina ennþá," sagði Klingenberginn rjóður í kynnum en hvenær mætir mamma til að hvetja liðið á Húsavíkurvelli?

„Hún var að hugsa um að koma á leikinn á morgun en ég er ekki alveg viss um að hún komist vegna vinnu. Hún ætlar að reyna koma allavega á einn leik hérna á Húsavík þannig þið megið búast við Siggu Kling á vellinum áður en að tímabilinu lýkur," sagði Klingenberginn að lokum klár í slaginn á morgun.

kling

Tengdar greinar:
Milan: Ég er kominn hingað til þess að skora mörk


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr