Kjarnafismti framundan - Vlsungur mtir KF um helginarttir - Ingvar Bjrn Gulaugsson - Lestrar 710 - Athugasemdir ( )
Meistaraflokkar Völsungs hafa hafið æfingar fyrir komandi knattspyrnusumar en eins og flestir áhugamenn um boltann vita er eitthvað það allra lengsta
undirbúningstímabil í heiminum á Íslandi.
Æfingarmót hefur gengið á Norðurlandi undanfarin ár og hefst það alltaf snemma á nýju ári. Mótið hefur heitið margt;
Powerade, Soccerade, Hleðslumótið og nú Kjarnafæðismótið. Mótið hefst í kvöld, 4.janúar, með leik Þór gegn KF
og hefja Völsungar leik á sunnudaginn er þeir mæta KF í Boganum kl.17.15.
Völsungur hefur einu sinni unnið mótið en árið 2010 urðum við Soccerademeistarar eftir sigur á KA í úrslitaleik. 1-1 var staðan eftir
að leiktíma lauk en Gunnar Klettur Jósteinsson jafnaði undir lok leiks með sleggju utan af velli. Völsungar unnu svo eftir vítaspyrnukeppni
Í ár er mótið spilað með deildarfyrirkomulagi og eru sjö lið skráð til leiks. Völsungur, Dalvík/Reynir, KA, KA2, KF, Þór
og Þór 2.
Leikir Völsungs í Norðurlandsmótinu:
6.jan - sunnudagur, kl.17.15: Völsungur - KF
11.jan - föstudagur, kl.20.00: Völsungur - Þór
20.jan - sunnudagur, kl.15.15: Völsungur - Þór2
27.jan - sunnudagur, kl.15.15: Völsungur - KA2
3.feb - sunnudagur, kl.16.00: Völsungur - KA
9.feb - laugardagur, kl.17.15: Völsungur - Dalvík/Reynir
Við hvetjum alla Völsunga til þess að kíkja í Bogann þar sem leikir Völsungs fara fram á ofangreindum tímum. Hvetjum liðið okkar,
alltaf, allstaðar.
Athugasemdir