Jón Hafsteinn skorađi sigurmarkiđ.Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 211 - Athugasemdir ( )
Húsvískir knattspyrnumenn hafa löngum getið sér gott orð á knattspyrnuvellinum hvort sem þeir spila með Völsungi eða einhverju öðru liði.
Einn þeirra skráði nafn sitt í sögubækurnar í fyrrakvöld, am.k. sögubók Íþróttafélags Reykjavíkur, þegar hann skoraði sigurmarkið í leik ÍR geng Fram. Leikurinn var úrslitaleikur í Reykjavíkurmótinu og komið var fram yfir venjulegan leiktíma þegar sigurmarkið kom.
Markaskorarinn sem um ræðir er Jón Hafsteinn Jóhannsson og hafði hann komið inn á í síðari hálfleik og náði að stimpla sig svona rækilega inn og tryggja liði síni Reykjavíkurmeistara-titilinn. Annar fyrrverandi leikmaður Völsungs, Mývetningurinn Baldvin Jón Hallgrímsson, er fyrirliði ÍR og tók hann við bikarnum.
Fleiri myndir er hægt að skoða hér
Athugasemdir