Jói Páls: Viđ áttum leikinn frá A til ÖÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 580 - Athugasemdir ( )
,,Þetta tók tíma en þær höfðu trúna, héldu áfram allan tímann og uppskáru eftir því," sagði
Jóhann Rúnar Pálsson, þjálfari kvennaliðsins, eftir 2-1 sigur í kvöld en Tindastóll kom í heimsókn er næst
síðasta umferð B-riðils fór fram.
,,Við áttum leikinn frá A til Ö og þær spiluðu gestina nánast sundur og saman en fengu svo á sig mark sem að ég held að enginn
á vellinum hafi áttað sig á nema kannski línuvörðurinn. Ég hélt að boltinn hefði farið yfir markið en hann datt undir
slánna," segir Jói en gestirnir skoruðu frá miðju og var fólk á vellinum lengi að átta sig á því að boltinn
hefði endað í netinu.
,,Ég ætlaði nú ekki að nota kjúllana mína því það er auðvitað stór leikur hjá þeim á morgun en
þær voru flottar sem og allt liðið heild sinni."
Nú er lokaleikur sumarsins framundan hjá liðinu um næstu helgi, hvernig er tilfinningin fyrir því?
,,Þetta hefur að mestu leyti verið mjög gaman og virkilega gaman að vinna með þessum stelpum. Sumarið er búið að vera erilsamt en skemmtilegt
og auðvitað hefði maður viljað vera með fleiri punkta, sérstaklega hérna heima. Liðið er flott en flestar eru á 2.flokks aldri og
ákváðum við fyrir mót að keyra á þessum stelpum og ég sé alls ekki eftir því akkurat núna að hafa ekki fengið
fleiri leikmenn inn í þetta. En liðið þarf ekki mikið til þess að fara skrefinu framar."
,,Auðvitað vill maður alltaf meira og kannski hægt að segja að það sé pínu svekkjandi að eiga ekki möguleika á því
að fara áfram. En ég held að þetta sé nú þannig að þessi lið sem að eru á leið áfram eru sterkust í
riðlinum. Markmiðið okkar var að lenda í einu af fjórum efstu sætunum og við erum ennþá í þeim potti en við þurfum helst
stig í næsta leik. Nú bara bíður HK/Víkingur og við hlökkum mikið til þess," sagði Jói í leikslok.
Jóhann Rúnar Pálsson, þjálfari
kvennaliðs Völsungs.
Tengdar greinar:
Helga Björk: Hefðum átt að skora fleiri mörk
Umfjöllun: Fyrirliðinn
stal sigrinum í lokin
Myndir: Hjálmar Bogi
Athugasemdir