Jói Páls: Viđ áttum leikinn frá A til Ö

,,Ţetta tók tíma en ţćr höfđu trúna, héldu áfram allan tímann og uppskáru eftir ţví," sagđi Jóhann Rúnar Pálsson, ţjálfari kvennaliđsins, eftir 2-1 sigur

Jói Páls: Viđ áttum leikinn frá A til Ö
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 580 - Athugasemdir ()

Jói gat brosađ í viđtalinu eftir leik
Jói gat brosađ í viđtalinu eftir leik

,,Þetta tók tíma en þær höfðu trúna, héldu áfram allan tímann og uppskáru eftir því," sagði Jóhann Rúnar Pálsson, þjálfari kvennaliðsins, eftir 2-1 sigur í kvöld en Tindastóll kom í heimsókn er næst síðasta umferð B-riðils fór fram.

,,Við áttum leikinn frá A til Ö og þær spiluðu gestina nánast sundur og saman en fengu svo á sig mark sem að ég held að enginn á vellinum hafi áttað sig á nema kannski línuvörðurinn. Ég hélt að boltinn hefði farið yfir markið en hann datt undir slánna," segir Jói en gestirnir skoruðu frá miðju og var fólk á vellinum lengi að átta sig á því að boltinn hefði endað í netinu.

,,Ég ætlaði nú ekki að nota kjúllana mína því það er auðvitað stór leikur hjá þeim á morgun en þær voru flottar sem og allt liðið heild sinni."

Nú er lokaleikur sumarsins framundan hjá liðinu um næstu helgi, hvernig er tilfinningin fyrir því?

,,Þetta hefur að mestu leyti verið mjög gaman og virkilega gaman að vinna með þessum stelpum. Sumarið er búið að vera erilsamt en skemmtilegt og auðvitað hefði maður viljað vera með fleiri punkta, sérstaklega hérna heima. Liðið er flott en flestar eru á 2.flokks aldri og ákváðum við fyrir mót að keyra á þessum stelpum og ég sé alls ekki eftir því akkurat núna að hafa ekki fengið fleiri leikmenn inn í þetta. En liðið þarf ekki mikið til þess að fara skrefinu framar."

,,Auðvitað vill maður alltaf meira og kannski hægt að segja að það sé pínu svekkjandi að eiga ekki möguleika á því að fara áfram. En ég held að þetta sé nú þannig að þessi lið sem að eru á leið áfram eru sterkust í riðlinum. Markmiðið okkar var að lenda í einu af fjórum efstu sætunum og við erum ennþá í þeim potti en við þurfum helst stig í næsta leik. Nú bara bíður HK/Víkingur og við hlökkum mikið til þess," sagði Jói í leikslok.

joiP
                      Jóhann Rúnar Pálsson, þjálfari kvennaliðs Völsungs.

Tengdar greinar:
Helga Björk: Hefðum átt að skora fleiri mörk

Umfjöllun: Fyrirliðinn stal sigrinum í lokin

Myndir: Hjálmar Bogi


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ