15. ma
Jafntefli fyrsta leikrttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 383 - Athugasemdir ( )
Völsungar náðu einu stigi úr fyrsta leik sumarsins sem fram fór á Grýluvelli í Hveragerði. Þar mættu þeir grænklæddu heimamönnum í Hamri og lauk leiknum með markalausu jafntefli.
Eftir því sem fram kemur í umfjöllum Fótbolta.net um leikinn voru Völsungar sterkari í fyrri hálfleik en heimamenn í þeim síðari.
Umfjöllun Fótbolta.net má lesa hér
Guðmundur Kr. Erlingsson í Hveragerði var á vellinum með myndavélina og skoða má myndir hans frá leiknum hér. Guðmundur lánaði 640.is meðfylgjandi mynd og eru honum hér færðar bestu þakkir fyrir.
Þá er væntanleg umfjöllun Rafnars Orra um leikinn á síðunni www.123.is/volsungur
Athugasemdir