22. jl
Jafntefli gegn Draupnirttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 379 - Athugasemdir ( )
Lið Völsungs í 1. deild kvenna lék gegn Draupni á Húsavíkurvelli í gærkveldi og hófst leikurinn fjörlega. Helga Björk Heiðarsdóttir skoraði fyrsta mark heimamanna strax á 5. mínútu leiksins og lofaði byrjunin góðu. Draupnisstúlkur náðu að jafna leikinn með marki Katrínar Vilhjálmsdóttir eftir tæplega stundarfjórðungsleik. Helga Björk skoraði aftur rétt fyrir leikhlé og staðan því 2-1 í hálfleik.
Ekki gekk hjá Völsungum að koma knettinum í mark Draupnisstúlkna í síðari hálfleik en gestirnir náðu að setja eitt. Jafntefli því staðreynd.
Helga Björk var kosin maður leiksins hjá Völsungum og fékk að launum gjafapakkningu frá NIVEA á Íslandi sem stendur að valinu ásamt 640.is.
Athugasemdir