Húsavíkurvöllur: Gryfjan

Ţađ er mikilvćgt fyrir öll íţróttafélög ađ eiga sterkan, fallegan, sigurríkan og erfiđan heimavöll sem öll liđ hrćđast eđa ţola ekki ađ heimsćkja.

Húsavíkurvöllur: Gryfjan
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 749 - Athugasemdir ()

Húsavíkurvöllur
Húsavíkurvöllur

Það er mikilvægt fyrir öll íþróttafélög að eiga sterkan, fallegan, sigurríkan og erfiðan heimavöll sem öll lið hræðast eða þola ekki að heimsækja. Heimavöllur á að vera staður þar sem leikmönnum Völsungs líður hvað best og á því sviði eiga þeir alltaf að geta sótt þetta extra, fengið þennan auka kraft sem skilur svo oft að við lokaflautið.

Í sumar stóð Dejan Pesic einn besti markvörður á Íslandi spengilegur á milli stanganna í marki Völsungs með þá Sigvalda Þór, Marko Blagojevic, Gunna Sigga, Stefán Jón og Sveinbjörn Má fyrir framan sig. Þessi vörn á stóran þátt í velgengni liðsins en hún var sú allra besta í deildinni og sýndi til að mynda heimavallartölfræði niðurstöður sem að allir geta verið hreyknir af. Völsungur fór taplaust í gegnum tímabilið á heimavelli og fékk liðið aðeins á sig fjögur mörk á Húsavíkurvelli, tvö af þessum mörkum komu úr vítaspyrnum. Völsungur sigraði níu leiki og gerði tvö jafntefli. Liðið mokaði á heimavelli 29 stigum af 33 mögulegum sem er einsdæmi á landinu sumarið 2012.

Það er við hæfi að tala um Húsavíkurvöll sem Gryfjuna eftir slíka frammistöðu en þetta er líka umhugsunarefni fyrir okkur sem að stöndum fyrir utan völlinn. Það er aldrei of oft tuggið á því hversu mikilvægt það er að hafa fólk í brekkunni og eflaust allir sammála um það að ekki verður Húsavíkurvöllur né einhver annar keppnisvöllur á landinu kallaður gryfja án þess að hafa fólk fyrir utan sem öskrar og hvetur lið sitt áfram með áðdáunaraugum og hvatningarkvæðum.

Notum þennan frábæra árangur til þess að byggja ofan á næsta sumar, mætum enn fleiri í brekkuna á alla leiki og þá sér boðskapurinn sjálfur um að breiðast í allar áttir um allt land. Þeir sem að leggja af stað til Húsavíkur með fulla rútu af leikmönnum eiga alltaf að hugsa að þeir séu ekki að fara vinna hér því það sé ekki hægt. Þannig er hálfur sigur unnin.
ahorfendur

Ástæða þess að ég skrifa þennan pistil er að svona hlutir fara eflaust framhjá mörgum og kannski ekki allir sem gera sér grein fyrir mikilvægi þess að eiga sterkan heimavöll. Þar með missir fólk tilfinninguna fyrir því hvað það skiptir miklu máli í raun og veru að hafa stuðningsmenn og Völsunga í brekkunni líka, ekki bara útitekna baráttuhunda í takkaskóm inn á vellinum. Vörnin okkar stóð sig frábærlega í sumar og varnarvinna liðsins í heild til fyrirmyndar. Við finnum fyrir miklu sjálfstrausti hér heima og næsta skref er að taka það enn lengra og hærra. Verið velkomin á hinn föngulega Húsavíkurvöll næsta sumar, verið hjartanlega velkomin í gryfjuna.

hvollur


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ