17. ágú
HSŢ međ fjóra íslandsmeistarartitlaÍţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 344 - Athugasemdir ( )
Sex
keppendur frá HSÞ tóku þátt í meistaramóti Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum sem fram fór
á Höfn í Hornafirði um helgina. Það er skemmst frá því að segja að þeir stóðu sig með miklum ágætum og
komu heim með 11 verðlaunapeninga. Þar af 4 Íslandsmeistaratitla.
Auður Gauksdóttir var Íslandsmeistari í kúluvarpi, önnur í hástökki og þriðja í spjótkasti. Elvar Baldvinsson varð Íslandsmeistari í langstökki og hástökki Þá varð hann þriðji í spjótkasti og kúluvarpi og annar í 80 m grindahlaupi 13 ára þrátt fyrir að hann sé einungis 12 ára. Dagbjört Ingvarsdóttir var Íslandsmeistari í 80 m grindahlaupi og þriðja í langstökki og Hjörvar Gunnarsson var þriðji í 800 m hlaupi.
Elvar stökk 1,55 í hástökki og gerði svo heiðarlega tilraun til að fara yfir 1,60 og bæta Íslandsmetið í sínum flokki, sem er 1,59, en felldi naumlega.
Myndir frá mótinu er hægt að skoða á heimasíðu frjálsíþróttakrakkanna í HSÞ en þaðan eru heimildir þessarar fréttar.

Athugasemdir