Hrannar Bjrn: Karakterinn liinu er grarlegurrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 573 - Athugasemdir ( )
,,Þetta er klárlega eins og við viljum hafa það og við erum bara rétt að byrja," sagði Hrannar Björn Bergmann, fyrirliði
Völsungs, eftir dýrmætan sigur í Mosfellsbænum í dag en Völsungur sigraði Aftureldingu, 1-2, í 15.umferð deildarinnar.
,,Þetta var fínasti leikur hjá okkur í dag og flott spil á köflum. Rennandi blautur völlur og frábærar aðstæður, í
raun draumaaðstæður fótboltamannsins myndi ég segja. Það sem skóp þennan sigur var samheldnin í liðinu og viljinn til að sigra.
Við vissum hvað var í húfi fyrir leik og vissum að við værum aldrei að fara tapa," bætti fyrirliðinn við með sjálfstraustið
uppmálað.
,,Karakterinn í liðinu er gríðarlegur eins og við höfum sýnt oft í sumar. Við erum í flottu formi eftir góðar æfingar
í vetur og það er klárlega að skila sér inni á vellinum," segir Hrannar stoltur af sínum mönnum og hrósaði innkomu nýju
leikmannanna í byrjunarliðinu og segir harða samkeppni um stöður í liðinu jákvæðan hlut.
,,Við erum með flottan hóp og þetta er ekki í fyrsta skipti sem við erum að sýna það að maður kemur í manns stað.
Þegar menn fá tækifærið á bara að nýta sér það og Alli gerði það í dag í sínum fyrsta
byrjunarliðsleik í langan tíma. Hann vann gríðarlega vel og átti flottan leik sem og auðvitað skoraði mark sem er frábært. Við
sjáum það líka að það er hörð samkeppni um stöður sem er ekkert nema jákvætt," segir Hrannar.
Næsti leikur liðsins er á þriðjudaginn næsta gegn Reyni Sandgerði en um er að ræða hörkuleik sem fram fer á
Húsavíkurvelli.
,,Það kemur ekkert nema sigur til greina gegn þeim á heimavelli. Það er líka gott þegar það er svona stutt á milli leikja, heldur
manni á tánum og því fleiri leikir því skemmtilegra. En það er ekki neitt gefið í þessu og Reynismenn hafa tapað fjórum
leikjum í röð eftir frábæra fyrri umferð svo þeir koma dýrvitlausir inn í þennan leik svo við verðum að mæta klárir
sem ég veit að við gerum," sagði Hrannar Björn um næsta leik.
,,Að lokum vil ég þakka öllum þeim stuðningsmönnum sem láta sjá sig á leikjunum okkar og þá sérstaklega
útileikjum. Það er frábært að sjá nánast í hverjum einasta útileik að Völsungur sé með fleiri stuðningsmenn
á pöllunum en heimaliðið. Þetta hefur klárlega áhrif og vonandi heldur þetta áfram," sagði fyrirliðinn.
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Traffík á toppnum
Alli Jói: Okkur líður vel á þessum stað
Athugasemdir