Hrannar Bjrn: Hann bjargai rauninni bara sigrinum

,,etta voru heldur betur spennandi lokamntur," sagi Hrannar Bjrn Bergmann Steingrmsson, fyrirlii Vlsungs, eftir mikilvgan, 2-3, sigur gegn Grttu

Hrannar Bjrn: Hann bjargai rauninni bara sigrinum
rttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 638 - Athugasemdir ()

Hrannar Bjrn fyrirlii
Hrannar Bjrn fyrirlii

,,Þetta voru heldur betur spennandi lokamínútur," sagði Hrannar Björn Bergmann Steingrímsson, fyrirliði Völsungs, eftir mikilvægan, 2-3, sigur gegn Gróttu í kvöld.

,,Undir lokin þegar að það er komið fram yfir venjulegan leiktíma þá fáum við dauðafæri, allavega tvö færi þar sem við vorum einir á móti markmanni en klúðruðum því klaufalega. Við vorum svo að sækja þarna mjög margir frammi, missum boltann og þeir negla fram og sleppa einir í gegn en þá mætir Sveinbjörn og átti frábæra tæklingu sem var bara mjög fagmannlega gert. Hann bjargaði í rauninni bara sigrinum fyrir okkur í kvöld," sagði Hrannar Björn sáttur með öll stigin.

,,Við vorum ekki að gefa mörg færi á okkur í fyrrihálfleik og varnarleikurinn var flottur, það vantaði bara meiri grimmd í sóknarleikinn. En í seinni hálfleik var þetta nátturulega bara allt annar leikur og frábært spil á köflum. Mér fannst bara ótrúlega gaman að sjá þetta og ógeðslega gaman að spila þennan leik," bætti fyrirliðinn við en hvernig finnst honum nýju leikmennirnir koma inn í þetta þeir Milan Pesic og Pétur sem að spilaði sinn fyrsta leik í kvöld?

,,Pétur er að koma vel inn í þetta og mér fannst hann flottur í leiknum. Ánægður með hvað er hann grjótharður á miðjunni, hann var að vinna bolta og er að spila honum vel frá sér. Milan er líka sterkur og þeir eru báðir að smellpassa inn í þetta hjá okkur. Þeir eru góð viðbót við hópinn og mikilvægir fyrir erfið átök í seinni hlutanum, það er alveg ljóst," segir Hrannar ánægður með nýju leikmennina en hvernig tilfinningin að vera þetta ungur og leiða uppeldislið sitt í toppbarráttu deildarinnar?

,,Það er bara frábær tilfinning og þegar að Dragan talaði við mig í vetur um að taka bandið og vildi fá mig sem fyrirliða þá var ég að sjálfsögðu tilbúinn, treysti mér í þetta og tel mig hafa skilað því vel. Það er ótrúlega gaman að leiða liðið sitt inn á völlinn í hverri viku, ég get ekki neitað því. Það er mjög gaman að vera í Völsungi og sérstaklega á svona stundum," sagði fyrirliðinn stoltur í leikslok og hljóp svo inn í klefa og fagnaði sætum sigri með strákunum.

Hrannar
            Hrannar Björn Bergmann Steingrímsson átti flottan leik í kvöld

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Dramatískur sigur þar sem vitinn vakir allar nætur

Halldór Fannar: Þeir verja hann ekki þarna


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr