Hrannar Björn: Fyrsta ţrennan mín eftir ađ ég fékk hár á punginnÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 709 - Athugasemdir ( )
„Gríðarlega sáttur með öll stigin," voru fyrstu orð fyrirliðans eftir leik en Hrannar Björn Bergmann Steingrímsson fyrirliði
Völsungs skoraði þrennu í, 1-4, sigri á Hvolsvelli í dag. Völsungar sitja nú á toppi deildarinnar með 40 stig.
„Við vissum að þetta yrði ekki auðveldur leikur. Eins og Halldór sagði í viðtalinu í gær þá er það oft
þannig að þegar að lið eru fallin þá er ákveðið stress sem leikmenn losna við og reyna þá að hafa bara gaman að
þessu, það getur verið erfitt að mæta þannig liði þar sem þeir hafa ekkert að keppa um."
„Mér fannst við koma ágætlega inn í leikinn en þegar að við vorum komnir í 0-2 þá mátti heyra saumnál detta
í grasið, menn þögnuðu og gríðarlegt kæruleysi hjá öllum í liðinu. En svo í hálfleik þá kom Dragan með
mjög góða ræðu og menn voru sammála um að við gætum enn betur og meira. Við vorum betri í seinni hálfleik og kláruðum
þetta, solid sigur ef ég leyfi mér að sletta," sagði Hrannar og brosti en hann skoraði sína fyrstu þrennu á ferlinum í dag.
„Ég held að þetta sé fyrsta þrennan mín á ferlinum utan við einhverjar þrennur í gamla daga þegar ég var í yngri
flokkum þannig já þetta er allavega fyrsta þrennan mín eftir að ég fékk hár á punginn," sagði fyrirliðinn og hló en
Hrannar var frábær í leiknum í dag.
Hrannar Björn fagnar hér
þriðja marki sínu í dag
„Við töluðum um fyrir leik að þetta væri gríðarlega mikilvægur leikur og allir vissu hvert verkefnið var. Þetta er mjög
erfiður útivöllur og liðin í toppbaráttunni hafa verið að tapa stigum hér, við vorum alveg staðráðnir að lenda ekki í
því sama og klára þetta svo ég er mjög ánægður með sigurinn og þetta er virkilega mikilvægt. Nú eru tveir heimaleikir og
einn útileikur eftir, við erum með fjögur stig í forskot á toppnum og ætlum okkur ekki að tapa því niður."
Næsti leikur liðsins er gegn Fjarðabyggð um næstu helgi og Hrannar býst við hörku leik.
„Þetta verður bara alvöru leikur eins og allir aðrir leikir í deildinni, það er ekkert gefið í þessu. Við erum að sjá
alla vinna alla og öll liðin að stela stigum hér og þar svo það þýðir ekkert annað en að mæta með kassann uppi og á fullu
í þennan leik um næstu helgi," sagði Hrannar Björn markamaskína að lokum.
Tengdar greinar:
Dragan Stojanovic: Þetta er ekki
búið
Umfjöllun: Þrenna Hrannars Björns drekkti KFR
Athugasemdir