Hrannar Bjrn: Erfitt a kyngja stiginurttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 675 - Athugasemdir ( )
„Þetta er mjög sárt, það er eiginlega það eina sem ég get sagt. Við missum sigurinn þegar að fimm
mínútur eru eftir og þetta er eiginlega bara óþolandi. Þetta var öðruvísi en á móti Njarðvík því við
vorum inn í leiknum og áttum að klára þennan leik, miklu sárara heldur en nokkurn tímann Njarðvík. Maður tók stiginu þá
en það er mun erfiðara að kyngja stiginu eftir þetta. Við verðum að gera það og þetta stig gæti verið mikilvægt í
lokin," sagði Hrannar Björn, fyrirliði Völsungs, eftir jafnteflið gegn KF á Ólafsfjarðarvelli.
„Við byrjuðum leikinn illa og förum ekki í gang fyrr en við skorum, þá vöknuðum við fannst mér og komum til baka sem var vel gert.
Ég var ánægður með baráttuna í liðinu og það var jákvætt."
„Við vissum allir hvernig þetta lið er, ég veit ekki hvort ég eigi að kalla þá tudda en það eru margir þarna sem eru bara naut
og við mættum því og svöruðum vel," sagði Hrannar en hvað fannst honum um þegar varnarmaður heimamanna stoppar boltann viljandi með hendi er
Haffi var að sleppa í gegn?
„Ég sá þetta mjög vel og þetta finnst mér bara vera nákvæmlega það sama og þegar að menn eru rændir
upplögðu marktækifæri. Hann leggur höndina út og stoppar boltann, segir svo við dómarann að þetta hafi verið óvart. Svo í
seinni hálfleik er ég að tala við Sissa þann sem sló boltann og hann viðurkenndi fyrir mér að þetta var klárlega viljandi, þetta
er bara rautt spjald fyrir mér og eflaust allir sammála því sem að sáu þetta. Því miður þá held ég að
dómarinn hafi bara ekki haft pung í að reka hann útaf," sagði Hrannar en leikmaður slapp með gult spjald.
Skemmtilegasti leikur sumarsins er um næstu helgi þegar að Hamar kemur í heimsókn á Mærudaga. Er ekki alltaf sami fiðringurinn fyrir þessum
mæruleikjum?
„Ef það er einhver leikur sem að maður bíður sérstaklega spenntur eftir að spila og frekar en einhverja aðra leiki þá er
það þessi heimaleikurinn á Mærudögum. Allir brottfluttir koma heim og sjá okkur, full brekka og vonandi gott veður. Þetta verður eflaust
stórkostlegt og við að sjálfsögðu tökum þrjú stig þar, við getum ekki annað en unnið á Mærudögum. Ég held
að liðið hafi aldrei tapað í þessum leikjum og við erum ekki að fara byrja á því núna," sagði fyrirliðinn
ákveðinn að lokum.
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Sóðakjaftur og stig á Ólafsfirði
Dragan: Stigið er betra en ekki neitt
Athugasemdir