Hleslumti hefst Boganum kvld

kvld hefst hi rlega undirbningsmt knattspyrnulia meistaraflokki karla Norurlandi Hleslumti 2012.

Hleslumti hefst Boganum kvld
rttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 413 - Athugasemdir ()

Í kvöld hefst hið árlega undirbúningsmót knattspyrnuliða í meistaraflokki karla á Norðurlandi – Hleðslumótið 2012. Mótið er á vegum knattspyrnudómarafélags Norðurlands (KDN) og styrktaraðili þess er Mjólkursamsalan.

Opnunarleikurinn er viðureign Þórs1 og Völsungs í A-riðli og hefst í Boganum klukkan 20:00 í kvöld. Rétt áður en leikurinn hefst mun fulltrúi KDN undirrita samning við Mjólkursamsöluna um nafn og styrktaraðila mótsins.

Liðin sem taka þátt að þessu sinni eru Dalvík/Reynir, KA1, KA2, KF, Magni, Völsungur, Þór1 og Þór2. Þau skiptast niður í tvo riðla:

A-riðill: Dalvík/Reynir, KA2, Völsungur, Þór1

B-riðill: KA1, KF, Magni, Þór2.

Öll liðin í hvorum riðli leika á móti hverju öðru og að riðlakeppni lokinni leika liðin sem enda í sömu sætum í riðlunum um endanlegt sæti í mótinu. Leikirnir fara fram í janúar og febrúar.

Aðrir leikir fyrstu umferðarinnar eru sem hér segir:

B-riðill lau 7. jan 14:15 KA1 – Magni

A-riðill lau 7. jan 16:15 KA2 – Dalvík/Reynir

B-riðill sun 8. jan 15:15 Þór2 – KF


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr