Helga Bjrk: Hefum tt a skora fleiri mrkrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 568 - Athugasemdir ( )
,,Tilfinning er mjög góð og þetta er var virkilega sætur sigur," sagði Helga Björk Heiðarsdóttir, markaskorari Völsungs, eftir
sætan 2-1 sigur á móti Tindastól í kvöld en næst síðasta umferð B-riðils fór fram í kvöld. Helga skoraði fyrra
mark liðsins en Harpa tryggði svo sigurinn í blálokin.
,,Við hefðum átt að skora fleiri mörk þar sem við sóttum og sóttum á þær. Liðið spilaði mjög vel í
þessum leik og við vorum óheppnar en sem betur fer þá datt þetta undir lokin," bætti Helga við með bros á vör.
,,Þessir sigrar hefðu mátt byrja að koma fyrr og mjög svekkjandi að möguleikin sé úti um að komast í úrslitakeppnina þar
sem að ég hefði viljað vera ofar en þetta," sagði Helga.
Næsti leikur liðsins er lokaleikur sumarsins hjá stelpunum en þá fá þær HK/Víking í heimsókn um næstu helgi.
,,Við klárum þetta með þremur stigum í viðbót, það er alveg klárt mál og ég bara segi það hér
með," sagði Helga Björk ákveðin að lokum.
Helga Björk Heiðarsdóttir átti mjög flottan leik í
kvöld.
Tengdar greinar:
Jói Páls: Við áttum leikinn frá A til Ö
Umfjöllun: Fyrirliðinn stal sigrinum í lokin
Myndir: Hjálmar Bogi
Athugasemdir