Halldór Orri á láni til VölsungsÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 767 - Athugasemdir ( )
Nýr liðsmaður er mættur á víkina en Völsungur hefur fengið Halldór Orra Hjaltason til liðs við sig á láni frá
Þór. Halldór Orri er tvítugur miðjumaður en hann spilaði 14 leiki með Þór í fyrstu deildinni í fyrra.
,,Ég er mjög ánægður með að vera búinn að fá hann," sagði Dragan Stojanovic þjálfari Völsungs við
Fótbolta.net í dag.
Halldór Orri er unglingalandsliðsmaður og hefur verið í æfingahóp U21 landsliðsins ásamt Hrannari og
Arnþóri svo um efnilegan leikmann er að ræða.
Völsungur er einnig að ganga frá samningum við framherjann Dejan Bozicic en hann hefur æft og spilað með liðinu að undanförnu. Dejan er 29 ára
gamall Slóveni en hann hefur spilað í heimalandinu, Bosníu og Grikklandi á sínum ferli.
Athugasemdir