Halldór Fannar: Ákveđinn áfangi ađ ná 100 leikjumÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 605 - Athugasemdir ( )
„Ég hafði nú svo sem ekki mikið leitt hugann að því en ég hafði séð þetta inn á KSÍ og þetta er
ákveðinn áfangi að ná 100 leikjum. Það er eins gott að við vinnum þennan leik til að eiga góða minningar," sagði
Halldór Fannar Júlíusson sem spilar sinn hundraðasta leik fyrir Völsung á morgun er liðið mætir KFR á Hvolsvelli.
Halldór hefur alla tíð spilað fyrir sitt uppeldisfélag þó með undantekningum þar sem hann hefur spilað með liðum í Danmörku
yfir vetrartímann samhliða námi sínu.
„Þetta er ágætis árangur og sýnir mikla ást í garð félagsins, þetta er skemmtilegt að ná þessu,"
bætti Halldór við brosandi en hvað er stefnan sett á að ná mörgum leikjum með liðinu?
„Ég er ekki með neitt ákveðið markmið eða tölu en ég held áfram á meðan að mér finnst þetta skemmtilegt og
stemningin í liðinu er góð. Mér þykir það líklegra en ekki að ég skori á morgun til þess að fagna þessu,"
sagði Halldór kíminn og rifjaði upp sleggjuna sem hann bauð upp á móti Gróttu fyrr í sumar.
Völsungur heimsækir KFR á morgun sem situr á botni deildarinnar og er nú þegar fallið úr deildinni á meðan Völsungar eru í
toppsætinu. Dóri segir þó ekkert gefið.
„Þetta verður ekki auðvelt og ég tel að þeir séu sýnd veiði en ekki gefin. Ég hugsa að þeir séu nú bara
að reyna hafa gaman að þessu úr því sem komið er. Það er oft sem það losnar um ákveðna spennu og pressu þegar lið eru
fallin svo þeir gætu mætt sterkir til leiks."
„Það virðast allir geta unnið alla í þessari deild svo þetta er spurning um að hvaða lið heldur dampi og vinnur flesta leiki. Það
er mjög jákvætt að fá rútuferð í dag og koma hvíldir í leikinn á morgun. Ég hef líka aldrei komið á
þessa staði, Hellu og Hvolsvöll svo það verður líka skemmtileg upplifun fyrir sig," sagði Halldór og gæddi sér á
nýbakaðri muffins í rútunni á leiðinni suður sem hann bakaði sjálfur í morgun áður en lagt var af stað í
ferðalagið.
Völsungur getur komist í 40 stig á toppi deildarinnar á morgun en Halldór fer hægt að tali um bikarinn eftirsótta.
„Ég tel að við séum nokkuð rólegir ennþá, það eru fjórir leikir eftir og fjögur lið sem að geta komist yfir okkur
þannig við tökum bara einn leik í einu og stefnum að sjálfsögðu á sigur í hverjum leik. Við bíðum aðeins með
það að tala um dolluna því það þýðir ekki að byrja fagna strax. Við verðum að klára þetta fyrst og höfum ekkert
unnið ennþá," sagði Halldór Fannar einbeittur og fullur tilhlökkunar á leið í sinn hundraðasta leik fyrir Völsung.
Athugasemdir