Hafr Mar: Vi erum bestirrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 826 - Athugasemdir ( )
„Tilfinningin er virkilega góð að vera á toppnum og ná að skora tvö mörk hér í dag. Við eigum heima þarna uppi,
sýndum það alveg í dag að við ætlum okkur að vera á toppnum og vorum mikið betri í leiknum, sérstaklega seinni
hálfleik," sagði markaskorarinn og Heimabakarísmaður leiksins Hafþór Mar Aðalgeirsson eftir, 2-0, sigur á KV í dag.
„Mér leið þannig í dag að markið myndi koma, ég hefði viljað ná þrennunni en það var ýtt á bakið
á mér þarna í dauðafærinu. Við vorum að spila vel og þeir náðu ekki að skapa sér mikið. Þetta datt á endanum
og við kláruðum dæmið," sagði Haffi brosandi fallegur.
„Það var gaman að koma og klára þetta svona eftir síðasta leik sem var nátturulega ekki leikur heldur miklu meira eins og stríð.
Við mættum bara ekki í þann leik en svöruðum vel fyrir það í dag. Við sýndum það í dag að við getum spilað
góðan fótbolta og vonandi að þeir sem voru á Dalvík í síðustu umferð hafi séð það í þessum
leik," bætti Hafþór við.
„Það er ekkert búið í þessu ennþá og þessir fjórir leikir sem eftir eru verða allir erfiðir. En við verðum bara
að mæta á fullu í alla leikina, spila okkar leik og þá eigum við að klára þessi lið. Við erum bestir," sagði Haffi að
lokum og byrjaði að slafra í sig súkkulaðiskónum sem hann fékk í verðlaun í leikslok.
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Kóngarnir komnir
heim
Dragan: Kláruðum þetta sannfærandi
Hrannar: Ég ætla ekki að vera kokký
Athugasemdir