21. g
Hafr Mar me rennu gegn Grindavk.rttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 259 - Athugasemdir ( )
Strákarnir í 3. flokki Völsungs eru nú á keppnisferðalgi á suðvesturhorninu þar sem þeir leika í Grindavík, Njarðvík og Reykjavík. Þeir léku fyrsta leikinn í dag, gegn Grindavík, og sigruðu með fjórum mörkum gegn tveim mörkum heimamanna.
Hafþór Mar Aðalgeirsson var á skotskónum í þessum leik og skoraði þrennu. Friðrik Marinó Ragnarsson setti svo eitt mark. Á morgun leika strákarnir gegn Njarðvík og sækja svo Þrótt Reykjavík heim á laugardaginn.
Meðfylgjandi mynd af Hafþór Mar tók Halli Sig. fyrr í sumar en Hafþór Mar sem er leikmaður 4. flokks spilar einnig með 3. flokki.
Athugasemdir