Gunni Siggi: Mjög góđ tilfinning ađ sjá boltann í netinuÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 553 - Athugasemdir ( )
„Það var mjög góð tilfinning að sjá boltann í netinu, þetta gerist varla sætara en þetta. Einum færri og klárum
þetta svo í uppbótartíma," sagði Gunnar Sigurður Jósteinsson, hetja Völsungs, sem tryggði Völsungi sigurinn í
uppbótartíma á Eskifirði í gær gegn Fjarðabyggð. Markalaust var fram að 94 mínútu þegar að Gunni stangaði knöttinn
í netið eftir aukaspyrnu frá Hrannari Birni og þar með liðið komið í annað sæti deildarinnar.
„Við vorum með leikinn í okkar höndum og þeir ekki að skapa sér neitt þannig hættuleg færi. Við áttum ágætis
sénsa sem voru samt kannski ekki dauðafæri og mér fannst aldrei hætta á því að þeir væru að fara að skora," sagði
varnarjaxlinn en markið hans Gunna hendir liðinu úr sjötta sæti upp í það annað og aðeins þrjú stig í Reyni Sandgerði sem
sitja á toppi deildarinnar.
„Þetta var mikilvægt mark og mikilvægur sigur fyrir liðið. Við ætluðum okkur allan tímann að koma hingað og hirða öll stigin
því við vissum að annað sætið væri að bíða eftir okkur. Þetta var algjör baráttusigur og allir leikmenn frá fyrsta til
aftasta börðust vel. Þetta var kannski ekki fallegasti fótboltinn en góður baráttusigur hjá okkur," sagði Gunni en hvað fannst honum um
rauða spjaldið sem að Arnþór fékk ?
„Mér fannst þetta aldrei rautt. Hann tekur boltann á undan og lendir svo í markmanninum eftir á. Þetta var allan tímann boltinn og aldrei
rautt spjald," segir Gunni en næsti leikur hjá liðinu er strax á þriðjudaginn en þá mæta strákarnir HK á
Húsavíkurvelli.
„Það eru bara þrjú stig og við förum að sjálfsögðu eins inn í þann leik og alla aðra. Sigur og ekkert annað sem
kemur til greina, við erum búnir gefa of mörg stig á heimavelli svo það er ekkert annað en sigur. Það hlýtur að vera að menn mæti
dýrvitlausir í þennan leik og með sjálfstraustið í lagi því menn sjá það líka að við getum unnið leiki
þó við séum ekki að spila fallegasta fótboltann og við erum að halda hreinu í mörgum leikjum sem er mjög jákvætt. Við
verðum klárir í þann slag og vonumst til að sjá sem flesta í brekkunni," sagði Gunni Siggi í leikslok þreyttur en sáttur eftir
hrikalega sætan sigur.
Gunnar Sigurður Jósteinsson
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Kletturinn hetja Völsungs á Eskifirði
Dragan: Þetta var snilld, algjör
snilld
Arnþór: Þetta var glórulaust
Athugasemdir