Gumundur li: Allt lii a spila velrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 742 - Athugasemdir ( )
,,Þetta var mjög fínt hjá okkur í dag, allt liðið að spila vel. Þeir voru meira með boltann en mér fannst við fá fleiri betri færi. Þetta er okkar langbesti leikur frá því að ég kom aftur í Völsung,” sagði Guðmundur Óli Steingrímsson, maður leiksins hjá Völsungum í dag.
,,Þetta var gott lið hjá okkur í dag, meiri reynsla en áður og menn að ná betur saman. Sveinbjörn að koma inn og Ásgeir til baka eftir meiðsli. Mér finnst líka Odrobéna alltaf koma betur og betur inn í þetta og frammistaða hans batnar á milli leikja. Hann var mjög góður í dag í miðverðinum,” hafði hann að segja um frammistöðu hins nýja Ungverja okkar, Péter Odrobéna.
Guðmundur Óli var okkar markahæsti maður í Kjarnafæðismótinu og skoraði einnig eitt mark í dag, er það sem koma skal?
,,Ég er bara rétt að byrja, annars er ég að spila á miðjunni núna og ég vil bæta við mörkum,” sagði
Guðmundur brosandi að lokum.
Tengdar greinar:
Hrannar Björn: Getum vonandi byggt ofan á það sem við gerðum hér í dag
Baráttustig í fyrsta leik Lengjubikarsins
Dragan í viðtali við fótbolta.net eftir jafnteflið gegn Fram (Myndband)
Myndasyrpa: FRAM 1-1 Völsungur
Athugasemdir