Fotbolti.net spáir stelpunum 4.sćti í sumar

Vefsíđan fotbolti.net hefur birt spá sína fyrir 1.deild kvenna sumariđ 2012. Völsungsstelpum er spáđ fjórđa sćtinu en ţađ er nokkuđ ljóst ađ stelpurnar

Fotbolti.net spáir stelpunum 4.sćti í sumar
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 247 - Athugasemdir ()

Harpa Ásgeirsdóttir, fyrirliđi Völsungs
Harpa Ásgeirsdóttir, fyrirliđi Völsungs

Vefsíðan fotbolti.net hefur birt spá sína fyrir 1.deild kvenna sumarið 2012. Völsungsstelpum er spáð fjórða sætinu en það er nokkuð ljóst að stelpurnar ætla sér stærri hluti en það. Hér fyrir neðan má lesa spá vefsíðunnar.

4.sæti: Völsungur

Húsavíkurliðið hefur verið í framför undanfarin ár og það er ekki ástæða til annars en að liðið haldi áfram að bæta sig í sumar. Völsungsliðið er borið uppi af heimastelpum og það virðist vera góður andi í liðinu. Leikmenn ná alltaf að þjappa sér saman og fara ansi langt á liðsheildinni. Liðið hefur þó misst einn besta leikmann og helsta markaskorara Völsungs undanfarin ár, en Hafrún Olgeirsdóttir fór í Þór/KA. Það verður vandmeðfarið að fylla skarðið sem hún skilur eftir sig en öflug liðsheildin ætti að geta það með góðri samstöðu.

Þjálfari: Jóhann Rúnar Pálsson

Lykilleikmaður:Harpa Ásgeirsdóttir. Harpa er snúin aftur á heimaslóðir eftir að hafa reynt fyrir sér í efstu deild með KR og Aftureldingu. Hún er skemmtilegur karakter og mikilvægur hlekkur í sterkri liðsheild Völsungs.

Hér er spá fotbolta.net í heild sinni: Spá Fótbolta.net fyrir 1.deild kvenna: B-riðill

harpasamningur
Harpa skrifaði undir nýjan samning á dögunum

Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ