Fjr orrablti 8. bekkjar.

Hann var jlegur andinn sem sveif yfir vtnum sal Borgarhlsskla sl. fstudagskvld egar orrablt 8. bekkjar var haldi ar. a er fyrir lngu

Fjr orrablti 8. bekkjar.
Almennt - Hafr Hreiarsson - Lestrar 640 - Athugasemdir ()

Stjarna kvldsins.
Stjarna kvldsins.

Hann var þjóðlegur andinn sem sveif yfir vötnum í sal Borgarhólsskóla sl. föstudagskvöld þegar þorrablót 8. bekkjar var haldið þar. Það er fyrir löngu komin hefð á það í skólanum að nemendur í 8. bekk haldi þorrablót. Til blótsins bjóða þau foreldrum sínum eða öðrum skyldmennum ásamt þeim starfsmönnum skólans sem koma að bekknum.

 

 

 Á meðan borðhaldi stóð voru skemmtiatriði nemenda og foreldra. Það ríkir alltaf töluverð eftirvænting þegar að þeim kemur og ekki síst eftir atriði foreldra. Það er skemmst frá því að segja að þeir slógu í gegn . Atriðið gekk út á að kynna þjóðlegar íþróttir eins og glímu, sjómann og krumlu og þá flutti hljómsveit þjóðleg lög undir. Að öðrum ólöstuðum var Björgvin R. Leifsson stjarna kvöldsins þegar hann söng lagið Jón var kræfur karl og hraustur í útsetningu Þursaflokksins.

 Krakkarnir hafa á undanförnum vikum æft gömlu dansana undir stjórn Halldórs skólastjóra og að borðhaldi loknu voru gömlu dansarnir dansaðir áður en diskóið tók völdin.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr