Dragan Stojanovic: etta er ekki birttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 712 - Athugasemdir ( )
„Þetta var mjög mikilvægur sigur og þetta var svolítið erfitt í dag. Það var margt sem var gott og á köflum spiluðum
við mjög hratt og góðan fótbolta líkt og við höfum yfirleitt verið að gera í allt sumar, þá strax varð allt miklu
betra," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs, eftir 1-4 sigur gegn KFR á útivelli í dag.
„Það sást svona síðustu 25 mínúturnar að þarna áttust við toppliðið og botnliðið en ekki í fyrri
hálfleik, alveg sama þótt við vorum yfir 1-3 í hálfleik þá var ég alls ekki ánægður með fyrri
hálfleikinn."
„Við fengum fullt af færum og það sem ég var ósáttur með var að við vorum ekki að klára færin okkar. Við fengum
fimm til sex dauðafæri einn á móti markmanni sem við klúðrum og það er auðvitað ekki gott en á heildina litið er 1-4 fín
úrslit," sagði Dragan yfirvegaður.
Hrannar Björn Steingrímsson átti stórleik í dag en hann skoraði þrennu og öskraði sína menn áfram líkt og konungur
ljónanna. Dragan hrósaði fyrirliðanum eftir leik.
„Auðvitað er þetta mjög jákvætt fyrir liðið og hann sjálfann, ég hugsa alltaf um liðið en Hrannar stóð sig mjög
vel í dag og hefur gert það í allt sumar. Ég er virkilega ánægður með Hrannar, hann er búinn að drífa liðið áfram
og rífa það upp með því að öskra strákanna áfram eins og í dag allan tímann í 90 mínútur. Hann skorar ekki
bara þrjú mörk heldur dregur liðið áfram með sér og eins og ég sagði áðan þá er hann búinn að standa sig
virkilega vel í allt sumar líkt og allir hinir strákarnir," sagði þjálfarinn sáttur.
Næsti leikur liðsins er á heimavelli gegn Fjarðabyggð um næstu helgi og á þjálfarinn von á erfiðum leik þar.
„Þetta verður erfiður leikur eins og hinir leikirnir. Fjarðabyggð unnu í dag svo þeir eiga von ennþá og eins og við sáum í
dag líka að ef við ætlum að vinna leik, þá er alveg sama hvað mótherjinn heitir og við þurfum að svitna mikið og spila vel
það hefur sýnt sig í sumar. Við verðum að mæta af alvöru í þennan leik ef við ætlum að sigra."
„Við erum rólegir og ég sem þjálfari er rólegur og reyni að útskýra fyrir leikmönnunum að þeir verði að vera
það líka með báða fætur fasta í jörðinni. Þetta er ekki búið og þrír leikir eftir sem við ætlum að
reyna vinna og eftir það sjáum við bara hvað til hvar við endum," sagði Dragan einbeittur í leikslok.
Tengdar greinar:
Hrannar Björn: Fyrsta þrennan mín eftir að ég fékk hár á punginn
Umfjöllun: Þrenna Hrannars Björns drekkti KFR
Athugasemdir