Dragan og Hrannar um leikinn í kvöld - Völsungur tekur á móti Dalvík/Reyni kl.20Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 436 - Athugasemdir ( )
Meistaraflokkur karla tekur á móti Dalvík/Reyni kl.20 á Húsavíkurvelli í kvöld en hér fyrir neðan má sjá hvað
þjálfari liðsins Dragan Stojanovic og fyrirliðinn Hrannar Björn Bergmann Steingrímsson höfðu að segja um komandi átök. Strákarnir eiga
harm að hefna eftir síðustu viðureign liðanna og vonandi að þeir svari fyrir það í kvöld.
Dragan Stojanovic, þjálfari meistaraflokks karla:
Mér líst vel á þennan leik og ég get ekki beðið eftir því að mæta með liðið út á
Húsavíkurvöll í kvöld þar sem við ætlum að bæta upp fyrir tapið um síðustu helgi. Allir strákarnir eru spenntir og
klárir í þennan leik. Þetta verður erfiður leikur og Dalvík/Reynir eru með níu stig en við með tíu svo það er bara eitt
stig á milli. Við töpuðum illa fyrir þeim í bikarnum í upphafi sumars og ætlum að hefna fyrir það. Stemningin er góð hjá
okkur og við hlökkum til að sjá sem flesta í brekkunni því við þurfum á öllum alvöru stuðningsmönnum liðsins að
halda í þessari baráttu í sumar.
Hrannar Björn Bergmann, fyrirliði meistaraflokks karla:
Tímabilið hefur byrjað ágætlega hjá okkur strákunum. Fimm leikir búnir og við erum á ágætum stað á
töflunni þó við vildum að sjálfsögðu vera ofar, en það er nóg eftir af sumrinu og hellingur af stigum í boði. Í kvöld
mætum við Dalvík/Reyni og þessir leikir eru alltaf skemmtilegir enda eru þetta okkar helstu erkifjendur ef hægt er að orða það þannig. Eftir
rassskellingu í bikarnum fyrr í sumar dugar ekkert annað en þrjú stig úr þessum leik svo það er engin hætta á öðru en
að við gefum alla okkar krafta í þennan leik. Okkar maður og frændi minn Stubbur er í markinu hjá þeim svo það væri auðvitað
extra sætt að sýna kallinum hverjir séu kóngarnir á norðurlandi. Mætingin í brekkuna það sem af er sumri hefur verið mjög
góð og ég vonast til að fólk haldi áfram að styðja við bakið á okkur og mæti á völlinn í kvöld.
Strákarnir taka á móti erkifjendunum í Dalvík/Reyni í
kvöld
Athugasemdir