Dragan: Mjög slćmt ađ vera í rútunni í 8-9 klukkutíma fyrir leik

„Ég er bara mjög svekktur yfir ţví ađ vera búinn ađ tapa leik og líka ađ tapa honum međ svona marki. Ţetta var versti seinni hálfleikur okkar í sumar,"

Dragan: Mjög slćmt ađ vera í rútunni í 8-9 klukkutíma fyrir leik
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 571 - Athugasemdir ()

Dragan á hlíđarlínunni í gćr
Dragan á hlíđarlínunni í gćr

„Ég er bara mjög svekktur yfir því að vera búinn að tapa leik og líka að tapa honum með svona marki. Þetta var versti seinni hálfleikur okkar í sumar," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs, eftir fyrsta tap liðsins í deildinni en Völsungur tapaði, 2-1, gegn Reyni Sandgerði í toppslag deildarinnar í gær.

„Reynir Sandgerði voru ekkert betri en við í fyrri hálfleik en mun betri í þeim seinni, þeir spiluðu betur á milli sín og sköpuðu sér nokkur hættuleg færi. Lið sem að á tuttugu sóknir á móti vörninni okkar, þá er bara eðlilegt að einu sinni, tvisvar eitthvað klikki," sagði Dragan.

Lagt var af stað örla morguns en farið var frá Sundlauginni 5:30 og segir þjálfarinn svona langt ferðalag vera mjög slæmt fyrir leikmenn.

„Þetta er mjög slæmt og að vera í rútunni í 8-9 klukkutíma fyrir leik er mjög erfitt fyrir leikmenn. Þegar að við komum til Sandgerðis og ég steig út úr rútunni þá var ég bara mjög slæmur í löppunum og þá hugsaði ég með mér hvernig ætli strákarnir séu eftir þetta því þeir þurfa að spila 90 mínútur plús. Þetta er ekki gott," segir Dragan.

Tine Zornik framherji Völsungs meiddist á dögunum er hann sleit hásin og verður ekki meira með í sumar en hann verður frá næsta hálfa árið.

„Auðvitað kemur alltaf maður í manns stað en það var alveg ljóst að við söknuðum Tine í leiknum. Hann var búinn að standa sig vel og átti mjög góða leiki fyrir okkur en hann verður ekki meira með í sumar og við verðum bara að snúa okkur að öðru, gera okkar besta og einbeita okkur að næsta leik því hann ætlum við að vinna," sagði Dragan en hann hrósaði fyrirliðanum eftir leik en Hrannar var sá eini sem að barðist allan tímann og var Dragan ánægður að fá hann til baka þó svo að hann hafi ekki verið að spila sína stöðu.

„Ég er mjög ánægður með Hrannar Björn. Hann spilaði og vann gríðarlega vel fyrir liðið allar 90 mínúturnar. Fyrsti byrjunarliðsleikurinn hans og ég var mjög ánægður með hann en þessi staða sem hann spilaði í leiknum er auðvitað ekki hans staða, hann bara leysti þetta fyrir okkur að þessu sinni og gerði það vel. Hann getur verið miklu betri á vængnum eins og allir vita," sagði Dragan um fyrirliðann.

„Við gefumst ekkert upp og erum búnir að standa vel í upphafi móts. Það er fullt af leikjum eftir og við verðum að halda áfram," sagði Dragan í leikslok.
drag

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Fyrsta tapið í deildinni staðreynd

Hrannar Björn: Það eru ljósir og dökkir punktar í þessu


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ