Dragan vitali hj fotbolti.net eftir HK leikinnrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 791 - Athugasemdir ( )
,,Þetta tókst ekki en við fengum færi til að gera það, þrisvar fjórum sinnum einn gegn markmanni en við náum ekki að skora og
leikurinn tapast," sagði Dragan Stojanovic þjálfari Völsungs í viðtali við fótbolti.net eftir 1-0 tap gegn HK í Kópavogi.
Jafntefli hefði tryggt Völsungi sæti í 1. deild og sigur hefði tryggt þeim sigur í deildini.
,,Mér fannst þetta góður leikur hjá báðum liðum. Þetta eru bæði góð fótboltalið og við spiluðum
fínan taktískan leik og lokuðum vel. Við vissum alveg að HK er með fínan hraða frammi. Við gerðum þetta mjög vel en það eina sem
vantaði var að skora í dag. Við áttum nóg af færum til að gera það en skorum ekki. við verðum að fara yfir þetta betur eftir
helgi."
Völsungur mætir Njarðvík í lokaumferðinni á heimavelli og þar verða þeir að reyna að sækja þetta stig sem vantar til að
komast upp.
,,Það er allaf erfitt þegar lið vantar eitt stig til að klára eins og við í dag. Það er alltaf hættulegt, en við verðum að
gera betur heima um næstu helgi. Þetta er úrslitaleikur og við verðum að fara vel yfir næstu viku og undirbúa okkur í þennan leik.
Ég trúi ekki öðru en að við getum klárað þann leik."
Það skorti ekki stuðninginn hjá Völsungi því mikill fjöldi Húsvíkinga varí stúkunni á Kópavogsvelli og studdi
liðið.
,,Það er gaman að sjá svona marga Völsunga koma að horfa á leikinn í dag. Það var mjög skemmtilegt að hlusta á stuðninginn
úr stúkunni allan seinni hálfleikinn en við náðum ekki að klára leikinn í dag. En við ætlum að reyna að gera það um
næstu helgi," sagði Dragan að lokum
Smelltu HÉR til að sjá video af viðtalinu við Dragan.
Athugasemdir