Dragan: Hugsum alltaf bara um nćsta leikÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 753 - Athugasemdir ( )
,,Það var frábær tilfinning að sjá boltann í netinu, þetta var frábært mark og alveg nauðsynlegt að vinna þennan leik.
Ég er mjög ánægður með sigurinn og virkilega mikilvæg þrjú stig," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs, brosandi
í leikslok eftir 1-0 sigur gegn Fjarðabyggð í dag.
,,Það voru erfiðar aðstæður í dag, mikill vindur og rigning. Við eigum mannskap sem getur spilað fótbolta og vill spila fótbolta,
það er erfitt í svona aðstæðum en við kláruðum þetta og þrjú stigin frábær," bætti Dragan við
glaðlegur og kuldalegur eftir leik.
Völsungur er á toppnum aðeins einu stigi frá því að tryggja sér sæti í 1.deild
,,Þetta er pressa en það er miklu betra að vera í svona pressu á toppnum heldur en í botnbaráttu. Við viljum vera í þessari
stöðu og strákarnir ráða vel við það enda búnir að sýna það í allt sumar. Þetta er nánast of mikil spenna.
Það eru tveir leikir eftir og við ætlum að mæta í þá báða til þess að vinna þá og tryggja okkur þau
markmið sem við settum okkur að fara upp," segir þjálfarinn en strákarnir heimsækja HK í kópavoginn um næstu helgi.
,,Erfiður leikur og á útivelli en þetta er bara leikur eins og allir aðrir í sumar. HK eru með gott lið og gefa eflaust allt sitt í þetta
en við ætlum að vera skynsamir og fara í Kópavoginn til þess að sækja þrjú stig."
,,Við hugsum alltaf bara um næsta leik. Það er klárt að við erum ekki búnir að spila nógu vel í síðustu tveimur leikjum
á móti KFR og í dag á móti Fjarðabyggð. Við verðum að spila miklu betur ef við ætlum okkur að vinna HK í næsta leik
og ég veit að strákarnir eru klárir í það verkefni," sagði Dragan að lokum sáttur með sigurinn.
Tengdar greinar:
Marko Blagojevic: Þurfum að halda einbeitingu
Umfjöllun: Einu stigi frá 1.deild
Athugasemdir