Dragan: Hugsum alltaf bara um nćsta leik

,,Ţađ var frábćr tilfinning ađ sjá boltann í netinu, ţetta var frábćrt mark og alveg nauđsynlegt ađ vinna ţennan leik. Ég er mjög ánćgđur međ sigurinn og

Dragan: Hugsum alltaf bara um nćsta leik
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 753 - Athugasemdir ()

,,Það var frábær tilfinning að sjá boltann í netinu, þetta var frábært mark og alveg nauðsynlegt að vinna þennan leik. Ég er mjög ánægður með sigurinn og virkilega mikilvæg þrjú stig," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs, brosandi í leikslok eftir 1-0 sigur gegn Fjarðabyggð í dag.

,,Það voru erfiðar aðstæður í dag, mikill vindur og rigning. Við eigum mannskap sem getur spilað fótbolta og vill spila fótbolta, það er erfitt í svona aðstæðum en við kláruðum þetta og þrjú stigin frábær," bætti Dragan við glaðlegur og kuldalegur eftir leik.


Völsungur er á toppnum aðeins einu stigi frá því að tryggja sér sæti í 1.deild

,,Þetta er pressa en það er miklu betra að vera í svona pressu á toppnum heldur en í botnbaráttu. Við viljum vera í þessari stöðu og strákarnir ráða vel við það enda búnir að sýna það í allt sumar. Þetta er nánast of mikil spenna. Það eru tveir leikir eftir og við ætlum að mæta í þá báða til þess að vinna þá og tryggja okkur þau markmið sem við settum okkur að fara upp," segir þjálfarinn en strákarnir heimsækja HK í kópavoginn um næstu helgi.

,,Erfiður leikur og á útivelli en þetta er bara leikur eins og allir aðrir í sumar. HK eru með gott lið og gefa eflaust allt sitt í þetta en við ætlum að vera skynsamir og fara í Kópavoginn til þess að sækja þrjú stig."

,,Við hugsum alltaf bara um næsta leik. Það er klárt að við erum ekki búnir að spila nógu vel í síðustu tveimur leikjum á móti KFR og í dag á móti Fjarðabyggð. Við verðum að spila miklu betur ef við ætlum okkur að vinna HK í næsta leik og ég veit að strákarnir eru klárir í það verkefni," sagði Dragan að lokum sáttur með sigurinn.

dragan

Tengdar greinar:
Marko Blagojevic: Þurfum að halda einbeitingu
Umfjöllun: Einu stigi frá 1.deild


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ