Dragan: Stigi er betra en ekki neitt

a er svoleiis ftbolta a ef li klrar dauafri kemur mark strax baki eins og gerist fyrir okkur leiknum. Vi fengum tv dauafri og

Dragan: Stigi er betra en ekki neitt
rttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 683 - Athugasemdir ()

Dragan Stojanovic
Dragan Stojanovic

„Það er svoleiðis í fótbolta að ef lið klúðrar dauðafæri þá kemur mark strax í bakið eins og gerðist fyrir okkur í leiknum. Við fengum tvö dauðafæri og sérstaklega eitt en náðum ekki að skora. Þetta gerist þegar að tíu mínútur eru eftir og svo fimm mínútum síðar jafna þeir. Ætli ég verði ekki að segja að stigið er betra en ekki neitt," sagði Dragan Stojanovic svekktur eftir leikinn í gær en Völsungur gerði, 2-2, jafntefli gegn KF á Ólafsfirði. Völsungur komst yfir í leiknum í seinni hálfleik með marki frá Marko Blagojevic úr aukaspyrnu en misstu leikinn í jafntefli er fimm mínútur lifðu leiks.

„Ég var ánægðari með þennan leik heldur en á móti Njarðvík í síðustu umferð. Við sýndum miklu meira í þessum leik og ég var mjög ánægður með baráttuna hjá strákunum. Þetta var erfiður útileikur og við náðum að svara þeim vel en ég er mjög svekktur að við náðum ekki landa öllum stigunum," sagði Dragan en næsti leikur sumarsins er 28. júlí á móti Hamar. Það má búast við fullri brekku og góðri stemningu þar sem Mærudagar fara fram þá helgi.

„Það er auðvitað mjög gott að fá fulla brekku og góða stemningu, það er mjög gott. En við megum ekki horfa of mikið upp í stúku því við verðum að einbeita okkur að leiknum og þetta er leikur sem að við verðum að klára. Það má ekki vanmeta þetta lið, þeir eru með færri stig en við en það er búið að sýna sig í sumar að allir geta unnið alla. Við mætum klárir í þetta verkefni og ætlum okkur öll stigin," sagði Dragan að lokum.

Tengdar greinar:
Hrannar Björn: Erfitt að kyngja stiginu

Umfjöllun: Sóðakjaftur og stig á Ólafsfirði


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr