31. júl
Donni Geir í ValÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 631 - Athugasemdir ( )
Halldór Geir Heiðarsson er farinn frá Völsungi og genginn til liðs við Val þar sem hann spilar með 2.flokki félagsins.
Donni sem fæddur er árið 1994 á að baki sex leiki fyrir meistaraflokk Völsungs en hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2010 þá
aðeins fimmtán ára gamall.
Hann hefur nú þegar spilað sinn fyrsta leik fyrir Valsmenn en hann spilaði allan leikinn og átti þátt í öllum mörkum liðsins í,
3-1, sigri gegn Leikni Reykjavík á dögunum.
Við óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi.
Athugasemdir