23. júl
Botnsvatnshlaup á MćrudögumAlmennt - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 467 - Athugasemdir ( )
Botnsvatnshlaupið verður haldið fimmtudaginn 26. júlí 2012 kl. 20:00 og hefst við Botnsvatn, rétt ofan við Húsavík og lýkur í Skrúðgarðinum á Húsavík.
Botnsvatn og tengdur Skrúðgarður er afar fallegt svæði, sem fáir hafa kynnst og notið.
Val er um að hlaupa umhverfis Botnsvatn og síðan niður með Búðará og í Skrúðgarðinn, samtals 7,6 km. eða fara einungis niður stíginn í Skrúðgarðinn sem eru 2,6 km. Tímataka verður í hlaupinu.
Hlaup, jogg eða ganga við allra hæfi, í fallegu umhverfi.
Skráning í botnsvatnshlaup@gmail.com eða á staðnum frá kl. 19:15.
Að sjálfsögðu er þátttaka ókeypis.
Athugasemdir