Blakarar stu sig vel Siglufirirttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 343 - Athugasemdir ( )
Blaklið Völsungs gerðu góða ferð til Siglufjarðar um síðastliðna helgi
enþar fór fram Siglómótið í blaki. Karlalið Völsungs hafnaði í 2. sæti og kvennalið Völsungs í 3.
sæti í 1.deild.
Á heimasíðu Völsungs segir að um dagsmót hafi verið að ræða og spiluðu konurnar sex leiki en karlarnir
fjóra.
Keppendur fengu leyfi til að aka gegnum
Héðinsfjarðargöngin á laugardagsmorgninum. Framkvæmdir
þar virðast ganga vel auk þess sem þetta styttir leiðina til Siglufjarðar verulega.
Í vetur hefur blakfólkið tekið þátt í þremur hraðmótum á norðurlandi auk þess að halda eitt mót sjálf, Nýársmót Völsungs sem fram fór íjanúarbyrjun.
Mikil gróska hefur verið í öldungablakinu í vetur líkt og á síðasta ári ogmunu eitt karlalið og þrjú kvennalið taka þátt í Öldungamótinu í vor semað
þessu sinni fer fram í Mosfellsbæ.
Meðfylgjandi myndir eru fengnar af vefsíðunni siglo.is en þær voru teknar við verðlaunaafhendinguna sem fram fór í Bátahúsinu.
Karlarnir náðu öðru sætinu, vantar tvo úr liðinu á myndina.
Konurnar náðu þriðja sætinu og fagna því gríðarlega eins og sést á myndinni.
Fleiri myndir frá mótinu er hægt að skoða hér
Athugasemdir