Baráttukveđjur til allra VölsungaÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 1069 - Athugasemdir ( )
Síðasta Völsungsleikskrá sumarsins var borin til húsa í dag en framundan er lokaleikur sumarsins líkt og allir vita. Völsungur getur tryggt
sér upp um deild sem og sigrað deildina ef liðið vinnur Njarðvík á laugardaginn kemur. Hér fyrir neðan má sjá baráttukveðjur
til allra Völsunga frá frábæru fólki en kveðjurnar birtust í leikskránni nú í morgun. Takk!
,,Sem norðan maður kem ég til með að vera Völlari næsta laugardag þegar þið spilið við Njarðvík og vona ég innilega að
þið náið að gulltryggja sæti ykkar í fyrstu deild að ári. Ég hef verið að fylgjast vel með enda Dragan þjálfari
góður félagi minn og þið eigið svo sannarlega skilið að klára þetta bíó bæði leikmenn og bærinn. Áfram
Völsungur”
- Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslenska landsliðsins
,,Völsungar hafa alltaf staðið saman hvar og hvenær sem er. Það er okkar einkenni og helsti styrkur. Samheldni, nánd og trú á verkefnið hafa
skilað mörgum glæstum minningum í bankann hjá grænum í gegnum tíðina og munu gera áfram. Þegar gefur á bátinn
þá þétta Völsungar raðirnar og verða enn illviðráðanlegri fyrir vikið. Á laugardaginn bíður enn eitt verkefnið fyrir
félagið okkar. Að þessu sinni er stórt stökk í boði fyrir liðið ef allt gengur upp. Strákarnir eru klárir að leysa þetta
lokaverkefni því bæði getan og hugarfarið er klárlega til staðar. Næsta laugardag er það skylda allra Völsunga, Húsvíkinga og
þeirra sem tengjast félaginu Völsungi á einhvern hátt að mæta í brekkuna og styðja strákana. Þeir hafa unnið sér inn
að við mætum og stöndum með þeim. Þeir eiga inni að 12.maðurinn standi þétt við bakið á þeim í þessum
mikilvæga leik. Strákar, við höfum fulla trú á að þið klárið þetta með stæl! Mætum öll og hvetjum Völsung
upp í 1.deild á laugardaginn!!!”
- Jóhann Kristinn Gunnarsson, Völsungur & Íslandsmeistaraþjálfari Þór/KA
,,Síðasti leikur tímabilsins fer nú í hönd og hann er gríðarlega mikilvægur! Því er nauðsynlegt að allir mæti á
völlinn. Stöndum saman í því að styðja liðið okkar myndarlega og látum í okkur heyra á jákvæðu nótunum.
Notum röddina með því að kalla hvatningarorðum á strákana en ekki eyða kröftunum í að orga á dómarann eða
mótherjana. Frumkvæði - Samvinna - Hugrekki er allt sem þarf! Koma svo Völsungar - allir á völlinn!!”
- Dóra Ármanns og Gulli Stefáns, Völsungar
,,Það hefur verið hrein unun að fylgjast með drengjunum í sumar. Baráttan, liðsheildin, andinn og síðast en ekki síst samheldnin í
hópnum er stórkostleg. Þetta lið er magnað og spilar hörkuskemmtilegan fótbolta. Fótbolta sem verðskuldar 1. deildarsæti næsta sumar.
Umgjörðin hjá Græna hernum á sér síðan enga hliðstæðu hjá neinu öðru liði á Íslandi. Það er
staðreynd og segir meira en mörg orð um hversu glæsileg og metnaðarfull umgjörð Völsungs er. Það er mikil vinna unnin innan sem utan vallar sem
ég veit að Húsvíkingar víða um land eru þakklátir fyrir. Hún hefur eflt áhuga margra á Völsungi og fært
fólkið enn nær félaginu sem því þykir vænt um. Það er vel. Húsavíkurbúar eiga að vera stoltir af þessum
glæsilega hópi sem ber hróður félagsins víða. Sama hvernig allt endar á lokadegi 2. deildar mun ég alltaf verða gríðarlega
stoltur af liðinu og öllum þeim sem standa að því. Það voru forréttindi að fylgjast með þessum flotta hópi í sumar. Takk
fyrir mig. Að lokum skora ég á alla bæjarbúa að fjölmenna á leikinn og hjálpa strákunum að ná markmiðum sínum.
Þeir eiga það svo sannarlega skilið.”
- Henry Birgir Gunnarsson, Völsungur
,,Nú er stórleikurinn við Njarðvík framundan og vona ég að flestir séu búnir að taka daginn frá. Þetta er stærsti leikur
sem félagið hefur spilað síðast liðin 7-8 ár og þess vegna er það mjög mikilvægt að við fáum sem allra flesta til að
mæta á völlinn og sýna félaginu sínu stuðninginn sem þeir eiga skilið. Ég myndi sjálfur gefa handlegg til að geta farið
norður og séð leikinn en það er því miður ekki í boði í þetta skiptið. Ég vona innilega að brekkan verði full
á laugardaginn þegar Hrannar Björn lyftir dollunni og að haldin verði bæjarhátíð bæði fyrir og eftir leik þar sem Völsungum
verður hampað á þann hátt sem þeir eiga skilið. Koma svo Grænir!!!!"
- Aron Bjarki Jósepsson, Völsungur
,,Að fara upp um deild er markmið allra liða sem ekki eru í efstu deild. Í tólf liða deild fara tvö lið upp á hverju ári eða aðeins
um 16,66 % og aðeins eitt stendur uppi sem Íslandsmeistari eða 8,33%. Á laugardaginn verður hægt að verða vitni að og taka þátt í
því að strákarnir í Völsungi klári markmiðið sitt og frábært tímabil. Eina sem þarf að gera til þess er að
mæta á völlinn, þeir sjá um restina, þetta eru alvöru menn, ég mæti.”
- Björn Olgeirsson, Völsungur
,,Vil senda hugheilar baráttukveðjur til liðsins og aðdáenda þeirra fyrir stóra leikinn á laugardaginn. Það er mikilvægt að
bæjarbúar fylkja sér á bakvið liðið og styðja það til sigurs. Á erfiðum tímum er gott að það sé mikið
undir hjá knattspyrnuliði bæjarins og það er aflið sem sameinar samfélagið í eina heild. Gangi ykkur vel Völsungur.”
- Gunnlaugur Jónsson, fyrrum landsliðsmaður & þjálfari KA.
,,Kæru Völsungar. Nú reynir virkilega á að standa saman og það getum við gert á laugardaginn á Húsavíkurvelli. Mætum
á völlinn og myndum eina sterka Völsungsheild, innan vallar sem utan, og styðjum þannig við strákana “okkar”. Gerum þennan dag eftirminnilegan
með S-unum þremur, Samstaða, Stuðningur, Sigur!”
- Skúli Hallgrímsson, Völsungur
,,Baráttukveðjur til ykkar allra. Samheldni skiptir mestu máli núna og allir þurfa að standa saman. Lífið er númer eitt og svo kemur
fótbolti, samstaða er lykillinn að þessu núna. Standið ykkur!”
- Jónas Hallgrímsson, Völsungs legend
,,Hvet alla Húsvíkinga til að fara á völlinn og styðja strákana. Það væri frábært fyrir bæjarfélagið ef
völsungar færu upp og ég hef fulla trú á að það takist. Áfram Völsungur."
- Hallgrímur Jónasson, Völsungur
,,Barátta - samstaða - stolt - hjarta - gleði - sigurvilji. Á laugardaginn verða þessi orð greipt í huga okkar allra sem höfum á einhvern
hátt tekið þátt í fótboltasumrinu hér á Húsavík. Hvort sem við erum leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn,
foreldrar, framtíðarleikmenn eða stuðningsmenn. Við þurfum að leggja allt okkar undir og sýna stóra völsungshjartað þegar kemur að
laugardeginum. Mætum merkt félaginu, verum glöð, sýnum samstöðu með strákunum, höfum trú á verefninu, berjumst hvert fyrir
annað en umfram allt verum stolt af því sem við erum, VÖLSUNGAR.”
- Unnar Þór Garðarsson, Völsungur
,,Ég vil þakka liðinu og Græna Hernum fyrir frábært knattspyrnusumar. Treysti því að þið siglið þessu fallega í land
á laugardaginn og takið við titlinum fyrir framan fulla brekku af góðu fólki. Látið svo Bjössa sýslumannssoninn óma um allan bæ
í kjölfarið!”
- Hermann Aðalgeirsson, Völsungur
,,KOMA SVO!!! Skora á alla bæjarbúa og aðra velunarra Völsungs til að mæta á Húsavíkurvöll næsta laugardag og hvetja
Völsung til sigurs í annari deild. Með samstöðuna að vopni eru okkur allir vegir færir. Siglum titlinum heim með stákunum og búum til
ógleymanlega stund. Þeir eiga það svo sannar-lega skilið. Áfram Völsungur!!!!!!”
- Aðalsteinn Árni Baldursson, Völsungur
,,Kæru Húsvíkingar og Völsungar. Sýnum í verki að við erum lang stærsta fjölskyldan og styðjum strákana okkar til sigurs á
laugardaginn og þar með 1. sætið í deildinni. Búum til ógleymanlega stund saman. Áfram Völsungur!
- Elfar Árni Aðalsteinsson, Völsungur
,,Kæru Völsungar, stærsta fjölskylda landsins. Nú er komið að stærsta leik sem Völsungur hefur spilað í mörg ár. Á
tímum sem þessum er mikilvægt að standa saman og það hefur þetta ótrúlega lið Völsungs svo sannarlega gert í allt sumar. Nú
er lag að bæjarbúar flykkist á völlinn og styðji strákana okkar í barráttunni um 1.deildar sæti.”
- Bjarki Baldvinsson, Völsungur
,,Ég sendi liðinu baráttukveðjur, að beiðni Græna Hersins (það er ekki hægt að segja nei við hann!). Ég held að besta
ráðleggingin sé sú fyrir leikmenn að gera sitt besta, og ákveða fyrirfram að “svindla” ekki:) Hlaupa alltaf til baka þegar þess
þarf, og hlaupa líka alltaf fram þegar þess þarf. Pressan frá stuðningsmönnum er nákvæmlega engin, held ég að sé
óhætt að segja. Það er um að gera að stilla spennustigið rétt, og gefast ekki upp ef hlutirnir ganga ekki upp, t.d. ef liðið fær á
sig mark. Þá er ekkert annað að gera en að spýta í lófana og reyna sitt besta áfram, og hafa gaman af því að spila! Áfram
Völsungur.”
- Magnús Halldórsson, Völsungur
,,Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn erfitt að vera ekki á Húsavík og einmitt núna! Ég trúi því að fyrir strákana
í liðinu slái Húsvíkingar og gestir met í aðsókn að fótboltaleik á laugardag og sýni öllum hvernig á að
styðja einstakt fótboltalið. Lið sem hefur sýnt álíka vilja, baráttu og karakter á skilið að vinna deildina með dúndrandi
stuðningi úr brekkunni. Ég sendi baráttukveðjur jafnt í klefann sem og brekkuna fyrir laugardag. MEGI GAMLA LOFTRÆSTIKERFIÐ LOKSINS HRYNJA Í
KLEFANUM GÓÐA EFTIR LEIKINN!!!”
- Björn Hákon Sveinsson, Völsungur
,,Á laugardaginn munu Völsungar leika síðasta deildarleik ársins. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur því eitt stig tryggir liðinu
för upp í 1. deild og sigur gerir liðið jafnframt að deildarmeistara. Leikurinn er þó ekki síst sérstakur sökum atburða liðinnar viku,
sem snerta marga beint og óbeint. Það hefur aldrei verið betri ástæða til að mæta á völlinn og styðja strákana til sigurs
á þessum erfiðu tímum. Því hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að mæta á völlinn og sýna stuðning. Sjáumst
á vellinum. ÁFRAM VÖLSUNGUR”
- Andri Valur Ívarsson, Völsungur
,,Kæru bæjarbúar. Það er komið að því að strákarnir okkar spili sinn mikilvægasta leik í sumar, mikilvægasti leikur
sumra þeirra á ferlinum. Þeir þurfa allan þann stuðning sem mögulegt er að fá um helgina, og þeir eiga hann svo sannarlega skilið.
Ég mun fylgjast grannt með gangi mála að utan og senda sterka strauma heim. Völsungar, njótið leiksins til hins ýtrasta og skemmtið ykkur fallega
að honum loknum. Klárið frábært sumar með sigri á heimavelli. Stærsta fjölskylda landsins er á leið upp í 1. deild!!!”
- Pálmi Rafn Pálmason, Völsungur
Athugasemdir