Ásrún Ósk: Mikilvćgt ađ enda sumariđ á sigriÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 736 - Athugasemdir ( )
„Leikurinn var bara fínn, við byrjuðum ekki vel en unnum okkur svo vel inn í leikinn. Hann var mjög jafn og bæði lið áttu opin færi
en við kláruðum þetta og það var mjög mikilvægt að enda sumarið á sigri," sagði Ásrún Ósk Einarsdóttir
eftir, 2-1, sigur í lokaleik sumarsins hjá kvennaliðinu.
„Við byrjuðum mótið alls ekki eins og við ætluðum okkur en gáfumst aldrei upp og uppskárum eftir því í seinni hluta
mótsins," bætti Ásrún við sem bar fyrirliðabandið í leiknum í gær þar sem Harpa var ekki með vegna meiðsla.
Stelpurnar sigruðu síðustu fjóra leiki sumarsins eftir slaka byrjun í upphafi móts. Hvað breyttist?
„Það breyttist svo sem ekki mikið fannst mér, aðallega það bara að við gáfumst aldrei upp og héldum alltaf áfram. Við
stefndum á að vera í topp 4 og ætluðum okkur að ná því. Við tryggðum okkur það með góðum sigri í
lokaleiknum. Það er auðvitað svekkjandi að horfa á töfluna núna og ekki að vera á leið í úrslitakeppnina, það langar
öllum að komast í úrslit. En við einfaldlega klúðruðum því algjörlega í byrjun móts og verðum að taka
því," segir Ásrún en hvernig er sumarið búið að vera?
„Sumarið var fínt bara. Það var mjög kaflaskipt en þegar mótið var hálfnað vorum við aðeins komin með sjö stig
úr sjö leikjum en náðum á móti úr síðustu sjö leikjunum fimmtán stigum. Það jákvæðasta er að við
höfðum trú á okkur allan tímann, einnig hvað við eigum margar efnilegar stelpur sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki og
eru rétt að byrja," sagði Ásrún en hvað stendur upp úr?
„Það sem stendur upp úr er seinni hlutinn held ég bara og að þurfa ekki að keyra til Ísafjarðar," sagði Ásrún
Ósk hlæjandi að lokum.
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Stelpurnar kvöddu
sumarið með sigri
Heiðdís: Var kominn tími til að keyra þetta aftur í gang
Athugasemdir