Ásgeir: Vorum virkilega óheppnir

„Ţetta er međ ţví versta sem mađur hefur gengiđ í gegnum á fótboltaferlinum. Dejan ver tvö víti og viđ skjótum tvisvar í slánna auk ţess ađ fá fín fćri.

Ásgeir: Vorum virkilega óheppnir
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 455 - Athugasemdir ()

Ásgeir Sigurgeirsson
Ásgeir Sigurgeirsson

„Þetta er með því versta sem maður hefur gengið í gegnum á fótboltaferlinum. Dejan ver tvö víti og við skjótum tvisvar í slánna auk þess að fá fín færi. Mjög pirrandi en við verðum bara að halda áfram og vinna næsta leik," sagði Ásgeir Sigurgeirsson, markaskorari Völsungs, en hann skoraði eina mark liðsins er Völsungur tapaði, 2-1, gegn KV í Vesturbænum í dag.

„Við byrjum mjög vel og alveg eftir planinu hans Dragan en svo slökum við eitthvað á eftir markið. Seinni hálfleikur var mjög góður hjá okkur en við bara vorum virkilega óheppnir," bætti Ásgeir við en hann segir ekkert nema sigur koma til greina í næsta leik er strákarnir taka á móti KFR heima um næstu helgi.

„Mér líst mjög vel á þann leik, við ætlum að sjálfsögðu að taka þrjú stig þar og sýna hvað við getum. En við verðum að vinna fyrir þessum stigum það er ekkert gefins," sagði Ásgeir sem var á dögunum valinn í 34 manna úrtakshóp hjá U17 og mætir til æfinga með landsliðinu á morgun.

„Ég er spenntur fyrir þessu og þetta leggst vel í mig. Ég veit ekki hvort að ég verði með en ég mæti allavega og horfi á því ég er með einhverja verki í lærinu, þetta kemur í ljós á morgun en ég hlýt að geta verið með. Ég er búinn að vera æfa með þessum strákum í allan vetur og þekki þá vel svo að þetta verður mjög skemmtilegt. Stefnan er að sjálfsögðu að vera í byrjunarliði í lokahópnum, það er markmiðið og draumur sumarsins," sagði Ásgeir hóvær en ákveðinn að lokum.

geiri
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Súludans í Vesturbænum

Dragan: Það getur allt gerst í fótbolta


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ