Ásgeir valinn í U-17 fyrir Norđurlandamótiđ

Gunnar Guđmundson, landsliđsţjálfari U17 landsliđs karla, hefur valiđ leikmenn í landsliđ Íslands sem keppir á Norđurlandamótinu í Fćreyjum 5.–12. ágúst.

Ásgeir valinn í U-17 fyrir Norđurlandamótiđ
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 558 - Athugasemdir ()

Ásgeir Sigurgeirsson
Ásgeir Sigurgeirsson

Gunnar Guðmundson, landsliðsþjálfari U17 landsliðs karla, hefur valið leikmenn í landslið Íslands sem keppir á Norðurlandamótinu í Færeyjum 5.–12. ágúst.

Okkar maður Ásgeir Sigurgeirsson er að sjálfsögðu í hópnum og óskar Græni herinn honum innilega til hamingju með valið og óskir um gott gengi. Ásgeir hefur verið flottur í liði meistaraflokks í sumar og er vel að þessu kominn en hann hefur verið í byrjunarliði Völsungs í öllum leikjum sumarsins og skorað fimm mörk.

,,Þetta er ánægjulegt og virkilega gaman að fá að taka þátt í þessu. Ég er mjög spenntur og mun gefa mig allan í þetta eins og önnur verkefni, þetta verður mjög spennandi mót. Liðin eru held ég svipuð hvað styrkleika varðar svo við eigum fína möguleika og að sjálfsögðu er markmiðið að komast áfram," sagði Ásgeir Sigurgeirsson, brosmildur eftir að Gunnar þjálfari tilkynnti valið.

Hópurinn:
u17


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ