Ásgeir Sigurgeirsson: Hann getur kennt manni eitthvađ en ég honum líkaÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 882 - Athugasemdir ( )
Ásgeir Sigurgeirsson var kosinn Heimabakarísmaður leiksins í fyrsta deildarleik sumarsins en hann skoraði eina mark leiksins er
Völsungur lagði KF, 1-0, í Boganum í dag. Markið kom strax á þriðju mínútu leiksins og var það hans fyrsta fyrir meistaraflokk
Völsungs.
„Tilfinningin var mjög góð að klára þetta, þetta er búið að vera gott í vetur og formið að skila sér. Við
vorum fínir í fyrrihálfleik og vorum að spila vel en duttum aðeins niður í lok fyrrihálfleiks og á köflum í seinni hálfleik en
annars var þetta bara mjög fínt," sagði Ásgeir skælbrosandi eftir leik og vissulega ánægður með sitt fyrsta KSÍ meistaraflokksmark
fyrir Völsung.
„Þetta var mjög sætt að tryggja sigurinn með fyrsta meistaraflokksmarkinu," bætti Ásgeir við.
Í liðinu er stóri bróðir Ásgeirs, Stefán Jón Sigurgeirsson en hann segir gott að hafa hann inn á vellinum með sér.
„Það er mjög gaman og gott að hafa Stebba John right back bróðir inn á vellinum með sér, hann getur kennt manni eitthvað en ég
honum líka," sagði Ásgeir kíminn að lokum en hann átti flottan leik í kvöld og óskum við honum til hamingju með að vera fyrsti
Heimabakarísleikmaður leiksins sumarið 2012 og hver veit nema að hann eigi eftir að safna fleiri Súkkulaðiskóm upp í hillu í sumar.
Ásgeir Sigurgeirsson,
Heimabakarísleikmaður leiksins
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Völsungsdrengir hirtu öll stigin í fyrsta deildarleik sumarsins
Dragan: Ætlum að fagna aðeins í kvöld en gleymum þessum leik strax á morgun
Athugasemdir